Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 71
„Eftirminnilegustu jólin sem ég hef upplifað voru
jólin 2004, en pabbi minn lést rétt fyrir hátíðirnar,“
segir Hanna Birna Jóhannesdóttir, eigandi Exó.
„Ég hef alltaf elskað jólin og aðventuna, elskað
jólalögin sem spiluð eru í útvarpinu, grenilyktina,
jólaljósin, jólakortaskrifin og jólakaffihúsaferðirnar.
En fyrir þessi jól var faðir minn jarðaður, 21.
desember, eftir tveggja mánaða baráttu upp á líf
og dauða. Þegar athöfninni var lokið voru einungis
þrír dagar til jóla og þá áttaði ég mig á því hvað
allt það sem áður var tilhlökkunarefni og mikil
upplifun fór nú hræðilega í taugarnar á mér. Ég
þoldi ekki jóladótið og allt tilstandið, mátti ekki
heyra jólatónlist í útvarpinu án þess að finna til
pirrings og slökkva. Ef ég fór inn í verslun þar
sem spiluð var jólatónlist sneri ég við og labbaði
út. Mér leið eins og ég væri í vitlausu boði. Þetta
passaði einhvern veginn alls ekki. Mitt líf hafði
verið á spítalanum síðustu mánuðina, ekkert
annað hafði komist að og mér fannst þetta allt
saman skrum og hræsni og í engum tengslum
við minn veruleika. Þremur dögum fyrir jól var ég
gersamlega úrvinda eftir vökur síðustu mánaða,
átti eftir að gera allt fyrir jólin, kaupa jólagjafir,
jólamatinn, athuga með jólafötin á fjölskylduna,
skrifa jólakort og undirbúa boðið fjölmenna á
gamlársdag. Einhvern veginn hafðist þetta þó allt
á endanum, þótt hugurinn væri víðs fjarri, og jólin
héldu innreið sína. Við fjölskyldan héldum þétt
hvert um annað, því auðvitað voru allir jafn brotnir,
og pössuðum sérstaklega vel upp á mömmu
sem átti svo erfitt. Í minningunni eru þetta
sorglegustu jól sem ég hef lifað, en jafnframt
þau kærleiksríkustu. Allir gáfu svo mikið af sér,
fólk faðmaðist sífellt og huggaði hvert annað og
kærleikurinn streymdi um húsið.“
Hanna Birna Jóhannesdóttir, eigandi Exó:
Sorglegustu og
kærleiksríkustu jólin
Jólin koma
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 71
Hanna Birna Jóhannesdóttir.