Frjáls verslun - 01.09.2007, Side 80
Lífsstíll
80 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
KvIKmYNdIr:
hiLmar karLsson
þess að hann sat saklaus í fangelsi
heldur einnig vegna þess hversu
illa fór fyrir eiginkonu hans og
dóttur meðan hann sat inni.
Hefnd hans beinist fyrst gegn
dómaranum sem dæmdi hann
og vindur svo upp á sig þegar
hann opnar aftur rakarastofu
þar sem hann, eins og segir í
laglínunni: „klippti herramenn
sem svo hurfu og ekkert var vitað
um meir.“
Litríkur söngleikjahöfundur
Í titilhlutverkinu í Sweeney Todd:
The Demon Barber of Fleet Street
er Johnny Depp og er myndin sú
sjötta sem hann og Tim Burton
gera saman. Fyrir eru Edward
Scissorhands, Ed Wood, Sleepy
Hollow, Charlie and the Chocolate
Factory og teiknimyndin Corpes
Bride. Í öðrum hlutverkum
eru Helena Bonham Carter
(sambýliskona Tim Burtons)
sem leikur frú Lovett sem
veit allt um Sweeney Todd
og matreiðir ómótstæðilegar
kjötbollur, hvaðan hún fær
hráefnið er svo annað mál. Í
hlutverki dómarans, Turpins,
sem sendir Todd í steininn, er
Alan Rickman, Timothy Spall
er hinn illgjarni aðstoðarmaður
dómarans, Beedle Bamfords,
og Sacha Baron Cohen leikur
rakarann Signor Adolfo Pirelli
sem á í harðri samkeppni við
Sweeney Todd.
Tónlist Stephens Sondheim,
sem einnig samdi textana við
lögin, er vel þekkt og kannski
fremur óperettutónlist en
hefðbundin söngleikjatónlist.
Sondheim er fæddur 22. mars
1930 og hefur komið víða við
á löngum ferli og samið tónlist
við margar kvikmyndir. Hann
varð fyrst þekktur 1957 þegar
hann samdi texta við tónlist
Leonard Bernsteins í West Side
sweeney Todd - rakari
Johnny Depp í hlutverki Sweeney Todds og Helena Bonham Carter í hlutverki Lovett á neðri hæðinni.
s
ú kvikmynd, sem mun
vekja hvað mesta athygli í
desember, er Sweeney Todd:
The Demon Barber of Fleet
Street í leikstjórn Tim Burtons.
Um er að ræða kvikmyndagerð
söngleiks sem farið hefur sigurför
um heimsbyggðina frá því hann
var fyrst sýndur á Broadway
1979. Var hann sýndur í Íslensku
óperunni fyrir nokkrum árum.
Höfundur söngleiksins, Stephen
Sondheim, samdi söngleikinn
upp úr leikriti Christopher
Bonds, sem frumsýnt var 1973,
en áður höfðu margar sögur
verið skrifaðar um Sweeney
Todd og nokkrar kvikmyndir
og sjónvarpsmyndir verið gerðar.
Síðustu sjónvarpsútgáfuna gerði
BBC í fyrra og 1998 leikstýrði
John Schlesinger Ben Kingsley í
sjónvarpsmynd sem hét The Tale
of Sweeney Todd. Er mynd Tim
Burtons sú áttunda sem gerð er.
Tim Burton er kjörinn til að
leikstýra Sweeney Todd. Burton
er að vísu ekki þekktur sem
leikstjóri söngleikjakvikmynda
en fjölbreytni hefur einkennt
feril hans þó svo segja megi
að allar hans kvikmyndir hafi
dökkan undirtón. Það umhverfi
sem Sweeney Todd lifir í á vel
við stíl Burtons.
Sögusviðið er London á síðari
hluta nítjándu aldar og hefur
Lundúnaþokan aldrei verið
þykkari. Sagan er í stuttu máli
sú að rakarinn Sweeney Todd
er ranglega ákærður fyrir glæp.
Þegar hann sleppur út er hann
í hefndarhug, ekki aðeins vegna