Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 81
Lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 81
sweeney Todd - rakari
Story og í fáein ár eftir það fékkst
hann að mestu við textagerð,
meðal annars við söngleikinn
Gypsy. Ekki nægði honum
textagerðin ein og 1962 sendi
hann frá sér söngleikinn A Funny
Thing Happened on the Way to
the Forum og í kjölfarið fylgdu
nokkrir söngleikir sem var misvel
tekið. Frægastir eru Company,
Follies og A Little Night Music,
sem byggður er á kvikmynd eftir
Ingmar Bergmann. Þess má svo
geta að Stephen Sondheim er
einn fárra eða jafnvel sá eini sem
hefur fengið Óskarsverðlaun,
Tonyverðlaun, Grammyverðlaun
og Pulitzerverðlaun og það oftar
en einu sinni. Tonyverðlaunin
hefur hann fengið sjö sinnum
og hefur enginn tónlistarmaður
fengið þau jafn oft.
Tim Burton
Tim Burton skaust fram á
sjónarsviðið með hinni ágætu
gamanmynd Beetle Juice
(1988) með Michael Keaton í
aðalhlutverki. Næsta kvikmynd
Burtons, Batman (1989),
einnig með Michael Keaton,
gerði þá báða að stjörnum
í Hollywood. Batman er þó
kvikmynd Burtons sem honum
er meinilla við. Hann leikstýrði
Batman Returns (1992), sem var
mun meira í anda hans síðari
mynda og féll hún ekki í kramið
hjá stórmyndaframleiðendum
í Hollywood og fékk Burton
ekki annað tækifæri í þeim
myndaflokki. Hann þurfti svo
sem ekkert á því að halda þar
sem í millitíðinni hafði hann
gert Edward Scissorhands (1990)
sem náði miklum vinsældum
og þar hófst farsælt samstarf
hans og Johnny Depp. Þegar
Burton var ekki lengur háður
Batmanmyndunum gat hann
snúið sér að draumaverkefni sem
hann hafði lengi alið með sér,
kvikmynd um misheppnaðasta
kvikmyndaleikstjóra sem uppi
hefur verið, Edward D. Wood
jr. Myndin hét einfallega Ed
Wood og fékk góða dóma og er
af mörgum talin besta mynd
Burtons, en áhorfendur létu sig
vanta, meðal annars vegna þess
að hún var í svart/hvítu.
Ferill Tim Burtons hefur
síðan verið á þá leið að önnur
hver mynd hans virðist slá í
gegn, en allar vekja þær þó
ómælda athygli. Kannski eru
það teiknimyndirnar hans tvær,
The Nightmare Before Christmas
og Corpse Bride, sem fengið
hafa bestu viðtökurnar hjá
almenningi og sú fyrrnefnda,
sem hann að vísu leikstýrði ekki
sjálfur, enda leynir handbragðið
sér ekki, er orðin klassísk
jólamynd og ný útgáfa af
henni, sem nefnist Tim Burton’s
Nightmare Before Christmas, er
komin á lista yfir vinsælustu
kvikmyndir vestan hafs um
þessar mundir.
Tim Burton er þegar
farinn að undirbúa sína næstu
kvikmynd, The Spook Aprentice,
sem fjallar um tíu ára dreng á
átjándu öld sem er að læra að
verða særingamaður.
nn djöfulóði
Guðbjörg Glóð Logadóttir, einn
af eigendum Fylgifiska og
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að sér finnist hrár fiskur
mjög góður. Hér fylgir einmitt
uppskrift þar sem hrár fiskur er
í aðalhlutverki.
„Breyta má uppskriftinni
með því að bæta sojasósu og
eða teriyaki sósu saman við og
þá er komin gjörólík útfærsla.“
Sítrusleginn hrár fiskur
(forréttur fyrir fjóra)
200 g rauðspretta, roðlaus
og beinlaus
200 g lax (eða silungur),
roðlaus og beinlaus
1 stk. sítróna
1 stk. límóna
1 stk. appelsína
1 msk. rifinn sítrónubörkur
1 msk. rifinn
appelsínubörkur
1 msk. hrísgrjónaedik
½ búnt kóriander
sjávarsalt
svartur pipar
Byrjið á að rífa börkinn á
appelsínunni og sítrónunni með
þar til gerðu rifjárni en gætið
þess að hvíti hlutinn fari sem
minnst með. Þær eru síðan
skornar í tvennt og safinn
kreistur úr þeim ofan í skál
ásamt safanum úr límónunni.
Hrísgrjónaedikinu er bætt
saman við og piparinn mulinn
yfir ásamt söxuðum kóriander.
Fiskurinn er skorinn í strimla og
settur í skálina. Gott er að láta
fiskinn liggja í um klukkutíma
en einnig má dýfa honum
hráum út í og borða strax, allt
eftir stað og stund. Mjög gott
að setja klettasalat undir áður
en rétturinn er borinn fram.
Sælkeri mánaðarins:
síTruslegið sælgæTi
Guðbjörg Glóð Logadóttir er sælkeri mánaðarins.