Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 82
Lífsstíll
Erla Sólveig Óskarsdóttir. „Stóllinn er nútímalegur en hefur jafnframt
skírskotun í gamla tímann en við hönnunina hafði ég í huga gamlan
borðstofustól á æskuheimili mínu.“
Erla sólveig óskarsdóttir,
húsgagna- og iðnhönnuður, hefur
hannað húsgögn í heimsklassa
sem framleidd eru og seld
víða um heim. í þeirra hópi er
stóllinn amEs EINN sem hér
á landi er seldur í versluninni
Epal auk þess að fást á fleiri
Norðurlöndum, í bandaríkjunum,
suður-ameríku og japan.
stóllinn fæst í ýmsum litum
– rauður, gulur, hvítur, svartur,
brúnn og blár.
í stíl við stólinn, sem
nota má bæði inni og úti,
hefur hún hannað barstól og
kaffihúsaborð.
„stóllinn er nútímalegur en
hefur jafnframt skírskotun í
gamla tímann, en við hönnunina
hafði ég í huga gamlan
borðstofustól á æskuheimili
mínu.“
við hönnunina á amEs
EINUm hafði Erla sólveig
notagildi í huga – hún vill ekkert
óþarfa skraut þegar kemur að
Hönnun:
aMes einn
Stóllinn AMES EINN sem seldur
er í ýmsum löndum.
hönnuninni. „Þá kýs ég lífræn
form, ég hef engan áhuga á
beinum línum.“
amEs EINN hlaut fyrr á
þessu ári fyrstu verðlaun í virtri
hönnunarsamkeppni í Kólum-
bíu, Premo lapiz acero. í kjöl-
far þessara verðlauna hefur
stóllinn fengið mikla umfjöllun í
fagtímaritum í suður-ameríku.
BÍóMOLAR
Í fótspor föðurins
Dóttir Clint Eastwoods,
Allison, hefur leikið í einum
tuttugu kvikmyndum, þar
af nokkrum með föður
sínum. Ekki hefur hún
náð merkilegum áfanga á
leiklistabrautinni og fetar nú
í fótspor föðurins og hefur
leikstýrt sinni fyrstu kvikmynd,
Rails & Ties, sem var
frumsýnd í byrjun nóvember
og hefur fengið góðar
viðtökur. Fjallar myndin um
járnbrautarstjórnandann Tom
og eiginkonu hans Megan. Líf
þeirra breytist þegar lest sem
Tom stjórnar keyrir á bíl sem
hefur stöðvast á teinunum.
Í bílnum eru móðir og sonur,
móðirin deyr. Sonurinn lifir
slysið af og kennir Tom um
að hafa valdið því en þegar
leiðir þeirra liggja saman tekur
sagan óvænta stefnu. Kevin
Bacon og Marcia Gay Harden
leika Tom og Megan og
óþekktur leikari, Miles Heizer,
leikur drenginn.
Allison Eastwood ræðir við hinn
unga Miles Heizer meðan tökur
fóru fram á Rails & Ties.
Grace er látin
Kvikmyndir sem fjalla á
einhvern hátt um stríðið í Írak
hafa ekki fengið góða aðsókn
í Bandaríkjunum. Hvort örlög
Grace Is Gone verða þau
sömu á eftir að koma í ljós í
byrjun desember þegar hún
verður sett á markaðinn. Það
eru þó ekki fyrstu sýningar
á myndinni en hún fékk
tvenn verðlaun á Sundance
kvikmyndahátíðinni fyrr á
þessu ári. Fjallar myndin um
Stanley (John Cusack), sem
er heima með tvær dætur
á meðan eiginkonan gegnir
herþjónustu í Írak. Þegar þær
fréttir berast að hún hafi látist
í stríðinu fer hann í ferðalag
með dætur sínar til Florida þar
sem hann vonar að umhverfið
henti betur þegar þær þurfa að
takast á við þá staðreynd að
móðir þeirra mun ekki koma
aftur. Leikstjóri Grace Is Gone
og handritshöfundur er James
C. Strouse og er myndin
frumraun hans.
Ást í fimmtíu ár
Mike Newell, sem síðast
leikstýrði Harry Potter and
the Goblet of Fire, er á allt
öðrum slóðum í nýjustu
kvikmynd sinni, Love in the
Time of Cholera, en hún er
gerð eftir rómaðri skáldsögu
Gabriel Marcia Marquez sem
kom út 1985 og árið eftir í
íslenskri þýðingu Guðbergs
Bergssonar, Ástin á tímum
kólerunnar. Handritið skrifaði
Ronald Harwood, sem skrifaði
handritin að The Pianist,
Being Julia og útgáfu Roman
Polanskis af Oliver Twist.
Myndin gerist á fimmtíu
árum og hefst þegar hinn
80 ára gamli Urbino deyr af
slysförum. Daginn sem hann
er jarðaður kemur fram á
sjónarsviðið Fiorentino Arizia
og í ljós kemur að hann hefur
verið ástfanginn af ekkjunni
Fermina Daza í fimmtíu ár. Í
kjölfarið fer Mike Newell með
okkur í fortíðina í nokkrum
atriðum þar sem við kynnumst
betur Fiorentino og ást hans
til Ferminu. Í aðalhlutverkum
eru Javier Bardem,
Benjamin Bratt og Giovanna
Mezzogiorno, ítölsk leikkona
sem hefur ekki áður leikið í
enskumælandi kvikmynd.
82 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7