Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 88
Fólk
88 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
L itir og föndur sérhæfir sig í smásölu og innflutningi á myndlistarvörum og föndurvörum. Verslanir eru á
Skólavörðurstíg 12 og Smiðjuvegi 4, Kópavogi.
Litir og föndur / Handlist er í eigu Guðfinnu
Önnu Hjálmarsdóttur og Gríms Jóhanns
Ingólfssonar. Guðfinna keypti fyrirtækið
1979, en það var upphaflega stofnað 1948
og hét þá Skiltagerðin: „Í gegnum árin höfum
við keypt nokkur fyrirtæki sem sameinast
hafa rekstrinum, listmálaradeild Málarans,
föndurdeild Tiffanys og brúðkaupsveisluleigu
og föndurdeild Völusteins.“
Guðfinna er menntuð í myndlist
frá Listaháskóla Íslands. Hún heldur
námskeið í listmálun, lita- og formfræði,
kertaskreytingum og öðru er tengist vörum
fyrirtækisins: „Ég var 12 ára þegar ég fór
fyrst í Myndlistarskólann í Reykjavík. Þegar
ég var komin með fjölskyldu hélt ég þar
áfram og fékk tilsögn hjá mörgum góðum
myndlistarmönnum, einnig starfaði ég í
Myndlistaklúbbi Seltjarnarness sem var mjög
virkur í þá daga. Það var svo 1998 sem ég lét
gamlan draum rætast og fór í framhaldsnám
og útskrifaðist fjórum árum síðar með BA-
gráðu í listum frá Listaháskóla Íslands.“
Þegar Guðfinna hóf nám í LHÍ urðu
talsverðar breytingar hjá fyrirtækinu: „Á
Skólavörðustígnum sér Hjálmar sonur okkar
núorðið um verslunina, innflutninginn og
skrifstofuvinnuna. Við vinnum svo öll saman
varðandi ákvarðanatökur, vöruinnkaup og
annað er varðar reksturinn. Grímur er lærður
húsgagnasmiður, hans starf er margvíslegt,
aðallega uppstrekkingar á málarastriga fyrir
myndlistarfólk.
Síðan við opnuðum verslunina í Kópavogi
hef ég að mestu verið þar við störf. Með
kaupum okkar á Veisluleigunni hefur
sumarverslunin lifnað við. Ég nýt þess að
aðstoða og þjóna viðskiptavinum okkar við
undirbúning varðandi brúðkaupsveislur og
fermingar.“
Vinnan og áhugamálin tengjast
órjúfanlegum böndum hjá Guðfinnu: „Það
eru að verða þrjátíu ár síðan ég fór út þennan
bransa og ég hef alltaf jafn gaman af að vera
í vinnunni. Í gegnum vinnuna hef ég kynnst
mörgu góðu fólki sem hefur fylgt okkur öll
þessi ár, auk þess sem alltaf er bætast við
traustan viðskiptahópinn. Ég finn mér alltaf
tíma til að mála og hef yfirleitt haldið eina
sýningu á ári.“
Við hjónin höfum mjög gaman af að
ferðast og erum búin að fara út um allan
heim, bæði troðnar og ótroðnar slóðir. Oft
hefjast ferðalögin á vörusýningum, síðan
nýtum við ferðina til að fara á áhugaverða
staði.
Við eigum sumarbústað í nágrenni
Reykjavíkur og njótum verunnar í óspilltri
náttúrunni hvenær sem tækifæri gefst.
Við eigum eina dóttur, tvo syni og 10
yndisleg barnabörn sem lífga heldur betur
upp á tilveruna. Ekki má gleyma minnstu
fjölskyldumeðlimunum sem eru tveir
japanskir smáhundar sem njóta þess að vera
með okkur og barnabörnunum.“
Nafn: Guðfinna Anna
Hjálmarsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
30. nóvember, 1948.
Foreldrar: Þórunn Guðrún
Thorlacius og Hjálmar Axel
Jónsson.
Maki: Grímur Jóhann
Ingólfsson.
Börn: Þórunn Ragnheiður,
42 ára, Hjálmar Axel 40 ára
og Vilhjálmur Árni, 34 ára.
Menntun: BA í listum frá
Listaháskóla Íslands.
Guðfinna anna Hjálmarsdóttir
Guðfinna Anna
Hjálmarsdóttir:
„Það eru að verða
þrjátíu ár síðan
ég fór út þennan
bransa og ég hef
alltaf jafn gaman af
að vera í vinnunni.“
verslunareigandi, Litir og föndur / Handlist