Frjáls verslun - 01.09.2005, Side 8
KYNNING8 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
FOCAL Consulting er hluti FOCAL Software & Consulting, sem
hefur sérhæft sig í gerð og innleiðingu hópvinnulausna fyrir kröfu-
hörð fyrirtæki og stofnanir sem líta til alþjóðlegra staðla og viður-
kenndra aðferða í stjórnun. Fyrirtækið er einnig þekkt undir nafninu
Hópvinnukerfi ehf.
Breyttar áherslur Fyrirtækið, sem er tíu ára um næstu áramót,
starfaði lengi við hugbúnðarlausnir í Lotus Notes, sem voru fyrst og
fremst tengdar gæða-, starfsmanna-, skjala- og markaðsstjórnun. Á
þessu ári var sú breyting gerð að stofnað var ráðgjafarsvið, sem sér-
hæfir sig í faglegri ráðgjöf á ofannefndum sviðum og lausnum fyrir
Microsoft umhverfið var bætt við lausnamengið.
Forstöðumaður FOCAL Consulting er Svala Rún Sigurðardóttir,
en hún er með BA gráðu í iðnaðarhagfræði og MS gráðu í vinnusál-
fræði.
Hugbúnaðarkerfin einn þáttur innleiðingar „FOCAL Consulting
er tilkomið vegna þarfa viðskiptavina okkar, sem eru að taka upp
mannauðsstjórnun, gæða- eða skjalastjórnun og þurfa að fá faglega
ráðgjöf í aðferðarfræðinni auk aðstoðar við innleiðingu upplýsinga-
kerfa. Mjög oft ganga slík verkefni út á að tengja saman skjala-
stjórnun og gæðastjórnun. Það hefur verið vöntun á slíkri aðstoð og
því miður er oft verið að selja/kaupa hugbúnaðarkerfi án samhliða
innleiðingar á þeirri aðferðafræði sem kerfið byggir á, án verklags-
reglna um notkun og án nægjanlegrar þjálfunar á viðkomandi kerfi.
Við undirbúum og aðstoðum við innleiðingu, setjum verklagsreglur
og fylgjum eftir gangsetningu og notkun kerfanna. Það eru sex starfs-
menn sem starfa að ráðgjöf í gæða-og skjalastjórn auk tæknilegra
ráðgjafa og hugbúnaðarráðgjafa. Í hvaða tækniumhverfi viðkom-
andi fyrirtæki starfar skiptir því ekki máli í innleiðingarferlinu.“
FOCAL gæðakerfi útbreidd FOCAL Software & Consulting er með
stóran hluta af innlendum markaði í hugbúnaðarlausnum fyrir gæða-
stjórnun. Ástæðuna fyrir velgengninni segir Svala Rún einfaldlega
vera að fyrirtækið veiti heildarlausn í rafrænni stjórnun ferla ásamt Svala Rún Sigurðardóttir, forstöðumaður FOCAL Consulting.
Hversu stórt er
„svartholið“ í þínu fyrirtæki?
Þarfagreining og ráðgjöf í gæða-, skjala- og mannauðsstjórnun
FOCAL CONSULTING