Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 34
Ragnhildur Geirsdóttir. Stefnan átti ekki að koma henni á óvart. Hannes Smárason: Kaupin á Sterling ekki löngu ákveðin. 20. október HANNES FORSTJÓRI - RAGNHILDUR ÚT Það er langt síðan að frétt í viðskiptalífinu hefur komið jafn- flatt upp á alla og fréttin um að Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, væri að hætta sem forstjóri félagsins eftir aðeins sjö mánuði í starfi. Um leið var tilkynnt að Hannes Smárason, stjórnarformaður félagsins, tæki við starfi forstjóra. Allir hugsuðu sem svo: „Ja, eitthvað mikið hefur gengið á þarna.“ Jafnframt var sagt frá því að grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á skipulagi félagsins þannig að það væri skilgreint fyrst og fremst sem fjárfestingafé- lag en ekki eignarhaldsfélag eða flugfélag. Fjárfestingar verða aðal- verkefni FL Group héðan í frá og skilið eins mikið á milli rekstrarfé- laga og fjárfestingarstarfseminnar og unnt er. Þá var greint frá því að Skarphéðinn Berg Steinarsson yrði formaður stjórnar félagsins og Þorsteinn M. Jónsson varafor- maður. 20. október Skýring Ragnhildar Ragnhildur Geirsdóttir segir í tilkynningu, sem send var út sam- hliða fréttum um breytt skipulag hjá FL Group og að orðið hafi að samkomulagi að hún léti af störfum sem forstjóri félagsins „í ljósi áherslubreytinga“ eftir aðeins sjö mánuði í starfi. Að öðru leyti hefur hún ekki útskýrt brotthvarf sitt frá félaginu, eða hvað hafi gengið á, en þeim mun meira hefur verið skrafað um það á meðal almennings. Ragnhildur segir í áðurnefndri tilkynningu: „Í ljósi áherslubreytinga hjá félag- inu er það samkomulag á milli mín og stjórnar félagsins að leiðir skilja á þessum tímapunkti. Und- anfarin ár hafa verið mjög áhuga- verður umbrotatími hjá félaginu og reksturinn og afkoman með allra besta móti. Ég þakka öllu því góða starfsfólki sem starfar hjá félaginu fyrir ánægjulegt sam- starf og óska því og félaginu alls hins besta,“ segir Ragnhildur Geirsdóttir í tilkynningunni. 23. október FL Group kaupir Sterling Tilkynnt var þennan sunnudag að FL Group hefði gengið frá kaupum á danska flugfélaginu Sterling, eftir nokkurra vikna samningaviðræður þar um. Kaup- verðið er 1.500 milljónir danskra króna, eða um 14,6 milljarðar íslenskra króna. Um fátt hefur verið meira skrafað en þetta kaupverð, sem flestum finnst vera ótrúlega hátt í ljósi þess að Pálmi Haraldsson, annar eigenda Fons, sem átti Sterling, sagðist hafa keypt Sterling á 4 milljarða kr. sl. vor. Að vísu hefur Sterling yfirtekið Mærsk Air í millitíðinni og orðið verðmætara. Hluti kaupverðs FL Group á Sterling er afkomutengdur og náist ekki ákveðinn árangur getur kaupverðið lækkað um allt að 500 milljónir danskra króna, um 4,9 milljarða íslenskra króna. Að sama skapi getur kaupverð hækkað ef betri árangur næst. 11 milljarðar eru greiddir í pen- ingum en afgangurinn í nýju hlutafé í FL Group. Sterling verður áfram rekið sem sjálfstætt rekstrarfélag. FL Group mun taka við rekstri félags- ins 1. janúar 2006. 23. október Hlutafjárútboð FL Group: 44 milljarðar Fyrirhugað hlutafjárútboð FL Group nemur 44 milljörðum að markaðsvirði og er áætlað að eigið fé félagsins verði 65 millj- arðar eftir útboðið og að mark- aðsverðmæti félagsins í Kauphöll Íslands verði um 80 milljarðar kr. Útboðsgengið verður 13,6 og verður hlutaféð aukið að nafn- virði um 3,3 milljarða. Það er meira en tvöföldun á nafnverði hlutafjárins sem núna er rúmir 2,5 milljarðar. Eigið féð FL Group 1. júlí sl. var um 16 milljarðar. Núverandi hluthafar í FL Group hafa þegar skuldbundið sig fyrir 39 milljörðum af 44 milljörðum í útboðinu. Heildarvelta rekstr- arfélaga FL Group verður 100 milljarðar eftir kaupin á Sterling. Fyrstu 9 mánuði ársins var hagn- aðurinn yfir 8 milljarðar króna, sem er besti árangur félagsins frá upphafi. D A G B Ó K I N 34 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 KAUPIN Á STERLING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.