Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 51
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 51
okkar samningum er í erlendum myntum,
oft dollurum sem kemur sér mjög illa. En
á móti kemur að skuldir okkar eru einnig í
erlendum myntum og lækka á móti þannig
að ekki má segja að framundan sé bara svart-
nætti. Ætli það endi ekki með því að við
þurfum að taka upp evruna, a.m.k. í þessum
viðskiptum.“
Mikið fundað um allan bæ Grand Hótel
hefur mikið verið nýtt fyrir ráðstefnur og
fundi af ýmsu tagi og segir Ólafur að enn sé
mikið að gera á þeim vettvangi þrátt fyrir að
komið hafi öflugur samkeppnisaðili þegar
Hótel Nordica opnaði eftir miklar endur-
bætur og eflingu á ráðstefnuaðstöðu sinni.
„Við höfum ekki fundi mikið fyrir því hjá
okkur enda er verið að funda endalaust um
allan bæ um allt milli himins og jarðar.“
Aðspurður hvort hann sé ekki hræddur
við offramboð á framboði á hótelgistingu
svarar hann því að hann sé alltaf smeykur.
„Það hefur sína kosti að hafa hæfilegar
áhyggjur, það heldur manni á tánum. Ann-
ars hef ég orðið varkárari með aldrinum. En
ég er með starfandi hótel í dag, það er allt
annað en að opna nýtt hótel.“
Hann segir einnig að útlitið sé nokkuð
bjart fyrir Íslendinga í hótelrekstri. „Hér
hefur verið sífelldur vöxtur undanfarin ár og
aukningin meiri en annars staðar. Sem dæmi
má nefna að um 3% aukning er í greininni að
meðaltali í heiminum, en almennt er talað
um 7% árlega aukningu hér á landi á næstu
árum. Við búumst við um milljón gestum
hingað eftir 10 ár. Svo vona ég að nýja tón-
listar- og ráðstefnuhúsið eigi eftir að ganga
vel og verði til að auka enn á komur erlendra
ferðamanna til landsins sem veitinga- og hót-
elgeirinn nýtur góðs af. Þó má ekki gleyma
því að greinin sem slík er viðkvæm og margt
sem getur sett strik í reikninginn,“ segir
Ólafur, og nefnir hryðjuverk og hátt gengi
krónunnar sem dæmi.
Þrátt fyrir miklar sveiflur og óvissu á
þessum markaði telur Ólafur sig vera ríkan
mann. „Ég á fimm börn og fimm barnabörn,
það eru aðalverðmætin í mínu lífi.“
Ólafur Torfason hótel-
stjóri. Lét sig dreyma
um að opna gistiheimili
í gömlum farsóttarspít-
ala en verður brátt með
um 500 hótelherbergi á
sínum snærum.
Mynd: Geir Ólafsson
Hér má glöggt sjá hvernig nýja byggingin tengist þeirri eldri. Húsið var teiknað hjá Arkform
arkitektum og byggingaraðili er Íslenskir aðalverktakar. Mynd: Arkform