Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 64

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 64
S pænsk hönnun og -framleiðsla hafa blómstrað síðustu ár, sem á ekki síst við um húsgögn og húsbúnað. Það er virkilega ánægjulegt að kynna og bjóða Íslendingum spænska vöru, því hönnunin er frábær og handverkið er vandað. Ég fullyrði að spænsk vara stendur þeirri sem kemur frá Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og Skandinavíu fylli- lega á sporði,“ segir Ingi Þór Jakobsson framkvæmdastjóri Exó. Leiðandi í nútímahönnun Í verslun Exó við Fákafen í Reykjavík er fjölbreytt úrval af vörum sem koma að miklu leyti frá Spáni. Fjórtán ár eru síðan Ingi Þór og Hanna Birna eiginkona hans settu Exó á laggirnar og frá fyrsta degi hafa spánskar vörur verið í aðalhlutverki. Umsvifin hafa aukist á þessum árum, sem sýnir vel hve Íslendingar eru opnir fyrir nýjum straumum og stefnum í húsgagnahönnun. „Í byrjun voru Íslendingar svolítið hikandi við að kaupa spænsk húsgögn, eins og margt annað frá Spáni. En um leið og fólk hafði kynnst gæðunum hurfu þessar efasemdir og við ákváðum að fara í útrás fyrir fjórum árum og opnuðum aðra Exó verslun í Osló og þar leggjum við einnig aðaláherslu á spánska hönnun,“ segir Ingi Þór. „Þegar ég var að læra innanhúsarkitektúr í Danmörku á árunum 1979 til 1982 komst ég ekki hjá því að taka eftir þeim nýju straumum í hönnun sem komu frá Spáni. Það var þó kannski fyrst á Olympíuleikunum í Barcelona sem heimurinn tók eftir stórkost- legum arkitektúr og hönnun Spánverja. Ítalir voru lengi allsráðandi á heimsvísu í svonefndri nútímahönnun - modern design - en nú hafa Spánverjar náð sama sess,“ segir Ingi Þór. Vöruhús og skrifstofa á Spáni Vegna umsvifa í viðskiptum við Spán starfrækir Exo vöruhús í Valencia og sömuleiðis var komið upp skrifstofu þar. „Stafsmaður þar sér um öll okkar mál þar og alla umsýslu varðandi spánska birgja, allt frá fyrsta samtali við nýjan birgi og alla leið í að raða í gáma til okkar. Þetta var okkur mikið happaskref,“ segir Ingi Þór. „Þarna talar Spánverji við Spánverja án milliliðar og allt gengur vel smurt. Afgreiðsla tekur að jafnaði um átta vikur, frá pöntun til afhendingardags hvort heldur sem varan fer til Íslands eða Osló.“ „Spænsk hönnun og framleiðsla hafa blómstrað síðustu ár, sem á ekki síst við um húsgögn og húsbúnað,“ segir Ingi Þór Jakobsson hjá Exó. e x ó Húsgögnin lækka og lengjast Lækkar og lengist Hjá Exó er í boði fjölbreytt úrval húsgagna og húsbúnaðar og segir Ingi Þór að síðustu ár hafi öll framleiðsla og hönnun frá Spáni þróast ótrúlega mikið. Þar ber hæst vörumerkin Grassoler, Sancal, Vicarbe, Ebanis og Dona Living. Öll þessi fyrir- tæki séu leiðandi í spánskri hönnun og eru á heimsmælikvarða. „Það nýjasta í spánskri hönnun er að húsgögnin eru að lækka og lengjast. Sófabök, borðstofustólar, sófaborð og skápar hafa lækkað talsvert. Einnig hafa sófarnir lengst og eru nú allt upp í fimm metra langir. Áhrifin eru að fólk skynjar allt rými stærra en ella. Háglans sprautulakkaðar veggeiningar og skápar eru með því nýjasta frá Spáni núna. Orange liturinn er að koma sterkur inn og hann er ein- staklega fallegur með tískulitunum á sófunum í dag - sem eru hvítir og svartir lágir og langir leðursófar. Í þessari nútímahönnun hafa Spánverjar verið framarlega í flokki og vakið athygli umheimsins fyrir“. Heimsmet í sætafjölda „Oft hefur vakið athygli Spánverja hvernig megi vera að meðal 300 þúsund manna þjóðar sé keyptur jafn mikill fjöldi sófa, sæta og stóla og raun ber vitni. Ætli hluti af ástæðunni sé ekki sá að Íslendingar verja mun meiri tíma inni við en Spánverjar sökum myrkurs stóran hluta árs. Algengt er að á hverju íslensku heimili séu um það bil þrjátíu sæti en á Spáni um það bil tíu. Ég held að það sé engum vafa undirorpið að Íslendingar eigi heimsmet í sætafjölda eins og svo mörgu öðru sé miðað við höfðatölu,“ segir Ingi Þór að lokum. Ingi Þór Jakobsson hjá Exó. 64 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 KYNNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.