Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 75

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 75
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 75 fjölskylduna. Þá hvílir það jafnvel enn þyngra á honum að faðir hans, Robert Spritzel (Michael Caine), verð- launarithöfundur, er ekki ánægður með soninn og starf hans, segir hann ekki einu sinni lærðan veðurfræðing. En Spritz þráir ekkert frekar en viðurkenningu hans. Það er því ekki gott andlegt veganesti sem Spritz fer með í prufuna. Fyrrum gítarleikari í pönkhljómsveit Leikstjóri The Weather Man, Gore Verbinski, hefur yfirleitt gert betur en hann gerir í The Weather Man, en þetta er í fyrsta sinn sem hann leikstýrir raunsæiskvikmynd. Cage reynir hvað hann getur til að gæða ógeðfellda persónu lífi, en fær litla hjálp frá leikstjóranum. Verbinski gengur betur í gerð ævintýra- og hrollvekjukvikmynda og í þeim geira á hann stuttan og frábæran feril að baki. Verbinski er fæddur 1964 í Tennessee og gekk í háskóla í Los Angeles. Það hafa sjálfsagt fáir spáð honum frama sem leikstjóra í Hollywood, þegar hann lét öllum illum látum á sviðinu sem gítarleikari í pönksveitunum The Daredevils og Little Kings. Verbinski átti sér þó annað líf, en hann byrjaði snemma að stjórna auglýsinga- myndböndum og er margverðlaunaður á því sviði. Verðlaunaauglýsingarnar fóru ekki framhjá framleið- endum í Hollywood og fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrði var hin lauflétta Mousehunt (1998). Næst kom The Mexican (2001) með Brad Pitt og Julie Roberts í aðalhlutverkum. Í kjölfarið fylgdi hin ágæta hrollvekja The Ring (2002) og síðan kom stóri smellurinn, Pirates of the Caribbean: The Curse of a Black Pearl, (2003), en hún er sem stendur í 21. sæti á lista yfir vinsælustu kvik- myndir allra tíma. Eins og fyrr segir er Verbinski á fullu í framhalds- myndum um sjóræningjann Jack Sparrow (Johnny Depp) og er ekki aðeins að stjórna tökum á mynd númer tvö, Pirates of the Caribbean: Dead Man Chest’s, heldur einnig þriðju myndinni, sem gengur undir vinnuheitinu Pirates of the Caribbean 3. KVIKMYNDIR Mannaveiðar og tímaflakk Tony Scott (litli bróðir Ridley Scotts) er frekar seinheppinn þessa dagana. Nýjasta kvikmynd hans, Domino, lofaði góðu, en hún fjallar um ævintýralegt líf fyrirsætunnar og mannaveiðarans Domino Harvey, dóttur hins þekkta leikara, Laurence Harvey, sem lést langt um aldur fram. Þegar tökum var lokið og allt klárt til að klippa myndina, þá fannst Domino látin á hótelher- bergi og þóttu aðstæður dularfullar. Það þurfti því að breyta endinum á myndinni. Það er Keira Knightley, sem leikur Domino. Eftir að hafa skilað frá sér Domino var Scott til- búinn í tökur í New Orleans á Déjà vu, þegar fellibylurinn Katrín eyði- lagði þær áætlanir. Það á samt að halda sig við New Orleans og hefjast tökur von bráðar, eða um leið og leyfi fæst. Déjà vu er framtíðar- mynd og fjallar um FBI löggu, sem ferðast aftur í tímann til að bjarga konu frá því að verða myrt. Denzel Washington leikur aðalhlutverkið. Viggo Mortensen á Spáni Hinn danskættaði Viggo Mortensen, sem hefur aldeilis fengið góða dóma fyrir leik sinn í The History of Violence, ætlar næst að leika í spænsku kvikmyndinni Teresa, sem verður stór og dýr mynd á spænskan mælikvarða. Fjallar myndin um líf hinnar heilögu Teresu sem var uppi á sautjándu öld, en dulúð hvílir yfir ævi hennar. Í titilhlutverkinu verður Paz Vega (Spanglish). Einnig verður Victoria Abril í stóru hlut- verki. Leikstjóri er Ray Loriga, en hann leikstýrði Mortensen í annarri spænskri kvikmynd, La Pistole de mi hermano (1997). Þess má svo geta að Viggo Mortensen talar spænsku reiprennandi. Capote 15. nóvember 1959 var fjöl- skylda í smábæ í Kansas myrt. Vöktu morðin mikinn óhug í Bandaríkjunum og fjölmiðlar fylgdust vel með réttarhöld- unum. Meðal blaðamanna við réttarhöldin var rithöfundurinn Truman Capote og skrifaði hann í kjölfarið mest seldu bók sína, In Cold Blood, sem síðar var kvikmynduð. Kvikmyndin Capote, sem nýlega var frumsýnd í Bandaríkjunum, segir frá Capote og veru hans í Kansas. Í upphafi er hann aðallega að gera sér dælt við bæjarbúa á sinn sérstaka hátt en verður fljótt fyrir sterkum áhrifum vegna kynna af öðrum morðingj- anum, Perry Smith. Kynni sem leiðir hann á allt aðrar slóðir í skrifum en hann ætlaði í fyrstu. Í hlutverki Trumans Capote er Philip Saymour Hoffman. Leikstjóri er Bennett Miller, sem fær mikið hrós fyrir frum- raun sína, sem og myndin í heild. BÍÓMOLAR Feðgar á biðstofu. Faðirinn (Michael Caine) er virtur rithöf- undur og Pulitzer-verðlaunahafi sem gefur lítið fyrir starf sonarins (Nicolas Cage). Philip Saymour Hoffman í hlut- verki rithöfundarins Trumans Capote. Keira Knightley leikur Domino Harvey.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.