Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 35

Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 35
23. október Hannes í Kastljósinu Hannes Smárason, forstjóri FL Group, var í eftirminnilegu Kastljósi sunnudagskvöldið 23. október eftir að hafa haldið fyrr um daginn blaðamannafund um kaup FL Group á Sterling fyrir 15 milljarða króna. Það voru þau Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Sig- mar Guðmundsson sem ræddu við Hannes og spurðu hann hvort kaup FL Group á Sterling hefðu verið löngu ákveðin og það jafnvel áður en Fons keypti Sterling - og hvort allt ferlið hefði verið ákveðið. Ennfremur var hann spurður að því hvort hann hefði átt per- sónulegra hagsmuna að gæta með einum eða öðrum hætti þegar Fons keypti Sterling og hvort FL Group eða hann persónu- lega hefðu lagt fé í Fons þegar það keypti Sterling. Hannes neitaði öllu slíku og svaraði hvað eftir annað: „Nei, alls ekki.“ Höfðu sumir á orði að þetta hefði verið setning kvöldsins. Þá var hann spurður hvort hann hefði án heimildar millifært 3 milljarða króna á „reikning úti í bæ“ fyrr á árinu og að það hefði verið ástæðan fyrir því að stjórnarmenn hefðu sagt sig úr félaginu í júní. Hann svaraði því neitandi og sagði þessar sögur þvælu og að þau yrðu að kanna heimildirnar betur. Áður hafði verið sagt í fréttum Blaðsins að þessi reikningur „úti í bæ“ hefði verið reikningur hjá Kaupþingi í Lúxemborg og að um endurgreiðslu þaðan hefði verið að ræða eftir að stjórnin blandaði sér í málið. 25. október Hvað var Pálmi búinn að leggja mikið í Sterling? Miklar umræður hafa orðið um það í viðskiptaheiminum hvað Fons, sem Pálmi Haraldsson er annar tveggja eigenda að, hafi verið búið að setja mikið fé í Sterling áður en það var selt FL Group fyrir 15 milljarða - sala sem er með miklum og flóknum skilyrðum í bak og fyrir. Allt hefur þetta snúist um það að Hannes Smárason sagði í Kastljósi að hann vissi að Pálmi hefði lagt miklu meiri fjárhæð í Sterling en þá 4 milljarða sem hann hefði sagst hafa keypt félagið á sl. vor. Pálmi spurður um þetta. Hann hélt sig við fyrri yfirlýsingu um 4 milljarðana en að hann hefði orðið að greiða fyrir Maersk Air en gæti ekki upplýst það. Næst sagði Hannes að þeir Pálmi væru að ræða um sama hlutinn. Þeir ættu við „allan pakk- ann“ sem búið væri að setja í Sterling. Þá kom Berlingske Tidende og sagði að Sterling hefði nýlega fengið 3 milljarða króna fyrir að yfirtaka flugfélagið Maersk Air og hafi stærsta fyrirtæki Dan- merkur, A.P. Möller - Mærsk, orðið að greiða þessa fjárhæð með Maersk Air svo það væri rekstrarhæft. Pálmi áréttaði þá við Morg- unblaðið að hann hefði orðið að greiða fyrir Maersk Air og sagði þetta: „Við keyptum Maersk Air með sérstöku samkomulagi við A.P. Møller í Danmörku, félag sem rekur helmingi fleiri þotur en Sterling, og floti Sterling fór úr tíu þotum í 30 við sameiningu þeirra. Við keyptum Maersk Air á ákveðnu kaupverði. Það var að ósk A.P. Møller gert sérstakt samkomulag um að greina ekki frá kaupverðinu. Það samkomu- lag verðum við að virða. En ég skal þó segja það með sérstöku leyfi frá þeim að við greiddum fyrir Maersk Air. Hvað það var mikið kemur hins vegar engum við öðrum en kaupanda og selj- anda enda var það ósk hans að ekki yrði greint frá því,“ sagði Pálmi. 26. október Hannes: Stefnan átti ekki að koma Ragnhildi á óvart Danska blaðið Jyllands-Posten tók viðtal við Hannes Smárason, forstjóra FL Group, og sagði hann markmiðið að Sterling yrði næststærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu. Hannes er spurður um brotthvarf Ragnhildar Geirs- dóttur, fyrrverandi forstjóra, og þar segir hann að „fyrirtækið hafi þróast í aðrar áttir en upp- haflega var áætlað“ og að þau Ragnhildur hafi ekki verið sam- mála um stefnuna, sem þó hefði ekki átt að koma henni á óvart; „hann hefði lagt línurnar fyrir 18 mánuðum“. F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 35 KAUPIN Á STERLING „Tekist í hendur; tákn um samheldni.“ Þannig hljóðaði texti Frjálsrar verslunar með þessari mynd sem tekin var 16. febrúar sl. þar sem Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, og Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, voru kynnt til sögunnar. En skjótt skipast veður í lofti. FV-mynd: Geir Ólafsson. Pálmi Haraldsson. Hvað var Fons búið að leggja mikið í Sterling og Maersk Air?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.