Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
D A G B Ó K I N
bankinn kæmi beint að flugvéla-
kaupum með FL Group en áður
hafði hann komið að fjármögnun
flugvélaviðskipta FL Group. FL
Group og Kaupþing banki stofn-
uðu sérstakt eignarhaldsfélag
um kaupin á flugvélinni og á
bankinn meirihlutann í félaginu,
eða 51%. Reiknað er með að
fleiri fjárfestar komi að félaginu.
Fyrir á FL Group dótturfélagið
Icelease sem sérhæfir sig í flug-
vélaviðskiptum.
13. október
Svava kaupir NTC
Svava Johansen hefur keypt öll
hlutabréf í NTC-verslanakeðjunni
af Ásgeiri Bolla Kristinssyni,
fyrrverandi eiginmanni sínum.
Svava segir fyrirtækið verða rekið
í sömu mynd og áður, en segir
að hún sé með ýmsar nýjungar
á prjónunum varðandi stækkun
þess. Sjá nánar annars staðar
í þessu tölublaði Frjálsrar versl-
unar.
14. október
Gísli, nýr formaður
sparisjóðanna
Gísli Kjartans-
son, sparisjóðs-
stjóri í Sparisjóði
Mýrasýslu, hefur
verið kjörinn for-
maður stjórnar
Sambands
íslenskra spari-
sjóða. Jón Kr.
Sólnes á Akur-
eyri var áður
formaður sambandsins. Aðrir
stjórnarmenn eru Angantýr Jónas-
son, Magnús Pálsson, Páll Sig-
urðsson, Ragnar Z. Guðjónsson,
Karl H. Erlingsson, Geirmundur
Kristinsson, Ólafur Haraldsson og
Ólafur Elísson.
14. október
Nýr forstjóri
hjá Eykt
Pétur Guðmundsson, aðaleigandi
byggingarfyrirtækisins Eyktar og
forstjóri þess frá stofnun, árið
1986, hefur ákveðið að láta af
starfi forstjóra. Hann er stjórn-
arformaður fyrirtækisins. Við
forstjórastarfinu hefur Gunnar
Valur Gíslason tekið. Gunnar
Valur, sem er verkfræðingur að
mennt með Diplom-gráðu frá
Þýskalandi, lét nýverið af starfi
sem bæjarstjóri á Álftanesi eftir
13 ára starf. Eykt er á meðal
stærstu verktakafyrirtækja lands-
ins.
14. október
Nýir eigendur
Icelandic Group
vildu ekki Þórólf
Um leið og tilkynnt var að
TM, Sund og Eimskip, ásamt
tengdum félögum, hefðu keypt
45% eignarhlut í Icelandic Group,
áður SH, fyrir um 12 milljarða, af
Straumi-Burðarási og Landsbank-
anum var sagt frá því að Þórólfur
Árnason, forstjóri Icelandic Group
til aðeins fimm mánaða, myndi
láta af störfum. Þórólfur tók við
starfinu í vor af Gunnari Svavars-
syni sem hafði verið forstjóri SH
um árabil. Icelandic Group varð
til sl. vor við sameiningu SH og
Sjóvíkur. Miklar vangaveltur urðu
um tíma hver tæki við af Þórólfi
og var nafn Ellerts Vigfússonar,
forstjóra Icelandic USA/Asia,
oftast nefnt. En síðar kom á
daginn að Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, nýkjörinn stjórn-
arformaður félagsins, yrði jafn-
framt forstjóri þess. Fyrir þessi
viðskipti var Straumur-Burðarás
fjárfestingabanki stærsti hlut-
hafinn í Icelandic Group með
33,3% hlut en Landsbankinn var
næststærstur með 20% hlut.
Skiptingin á milli félaganna í
sölunni var sú að Straumur-Burða-
rás seldi tæpan 31% hlut og
Landsbankinn rúm 14%. Bæði
Straumur-Burðarás fjárfestinga-
banki og Landsbankinn gáfu út
yfirlýsingu eftir viðskiptin um
að umbreytingarhlutverki þeirra
í Icelandic Group væri lokið og
þar af leiðandi hefðu þeir selt
megnið af hlutabréfum sínum í
félaginu.
15. október
Hilmar nýr
flugrekstrarstjóri
Icelandair
Hilmar B. Baldursson, yfirflug-
stjóri Icelandair, hefur verið ráð-
inn flugrekstrarstjóri félagsins.
Hilmar tekur við starfinu af Jens
Bjarnasyni sem nýlega var ráðinn
framkvæmdastjóri ITS, Icelandair
Technical Services. Hilmar á
athyglisverðan feril að baki, hann
útskrifaðist sem viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla Íslands 1977
en hafði með námi sínu þar
stundað flugnám og varð atvinnu-
flugmaður 1976. Hann hóf störf
sem flugmaður hjá Flugleiðum
1978. Hann sat í Flugráði frá
1980 til 2003 og sem formaður
1994 til 2003.
Gísli
Kjartansson,
sparisjóðs-
stjóri SPM.
Þórólfur Árnason.
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson.