Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 19
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
MYNDIR: GRÍMUR BJARNASON,
GEIR ÓLAFSSON ofl.
Maraþonhlaup, en árangur sést á hverjum degi, segir Svafa Grönfeldt, nýráðin
aðstoðarforstjóri Actavis. Fyrirtækið er í örum vexti. Starfsemin er í um 30 löndum
og starfsmenn um sjö þúsund. Kaup á Alpharma skapa tækifæri á Vesturlöndum.
SVAFA
Í
æsku var ég alltaf á fullu í íþróttum og ef til vill mót-
aði það hugarfar mitt fyrir lífstíð. Þar lærði ég ögun
og að gefast ekki upp. Þetta eru gildi sem hafa fylgt
mér. Ég æfði aðallega frjálsar íþróttir og spretthlaupin
áttu helst og best við mig. Kannski er ég líka sprett-
hlaupari að upplagi. Mér finnst gaman að taka snarpar
lotur. Ég staðnæmist þó yfirleitt lengi við hvert verkefni
og starfið hjá Actavis er líkast maraþonhlaupi. Árangur
sést þó á hverjum degi. Vöxtur fyrirtækisins er hraður
og með kaupum á samheitalyfjasviði Alpharma verður
Actavis fjórða stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi.
Actavis starfar í hörðu samkeppnisumhverfi, þar sem
fjölmörg fyrirtæki um allan heim takast á. Því er sú
staðreynd að ná fjórða sætinu á aðeins sex árum
enn eftirtektarverðari. En árangurinn er þó ekki
tilviljun. Skýr sýn, ástríða og öguð vinubrögð
hafa markað leiðina. Fjöldi öflugra einstaklinga
hefur lagt allt í sölurnar til að byggja upp fyrir-
tækið. Vísindamenn, stjórnendur og starfsmenn hafa
staðið þétt saman svo markmiðum sé náð og mér finnst
mikill heiður að hafa fengið að taka þátt í þessu mjög svo
spennandi ferðalagi,“ segir Svafa Grönfeldt.
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 19
FORSÍÐUGREIN • SVAFA GRÖNFELDT