Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
Útilíf er þekkt verslun með útivi-starfatnað, flestar gerðir af íþróttafatn-aði og skóm, auk annars varnings sem
tengist útivist og íþróttum. Verslunin er til
húsa á þremur stöðum, Glæsibæ, Kringlunni
og Smáralind. Framkvæmdastjóri Útilífs er
Gerður Ríkharðsdóttir: „Starfið er fjölbreytt
og gefandi og í mörg
horn að líta. Í verslun-
unum í Smáralind og
Kringlunni er áhersla
lögð á íþróttafatnað og
skó, en í Glæsibæ, þar
sem hin rótgróna Úti-
lífsverslun er, leggjum
við meiri áherslu á
útivistarfatnaðinn og
vorum einmitt nýlega
að stækka útivistar-
deildina úr rúmum 200
í 400 fermetra og þar
erum við með sérstaka deild fyrir North
Face útivistarfatnaðinn, sem er í mikilli
sókn, og einnig með Cintamani, fatnað sem
er íslenskur.“
Gerður er búin að vera framkvæmda-
stjóri Útilífs í fjögur ár. „Ég var áður fram-
kvæmdastjóri Ikea og þar áður hjá O. John-
son & Kaaber og Heimilistækjum. Mitt starf
felst í yfirsýn yfir reksturinn og svo eru
markaðsmálin á minni könnu og ýmis stefnu-
mótandi vinna. Mér til halds og trausts eru
innkaupastjóri og þrír verslunarstjórar.“
Þess má geta að Útilíf er ein af fjórum sér-
verslunum sem Hagar reka í Smáralind,
hinar eru Debenhams,
Top Shop og Zara.
„Við erum fjórar kon-
urnar sem erum fram-
kvæmdastjórar fyrir
þessum verslunum og
erum með skrifstofur í
Smáralind. Við höldum
hópinn og erum með
sameiginlegan fund
vikulega.“
Gerður er fjölskyldu-
manneskja. „Eigin-
maður minn heitir
Óskar Örn Jónsson verkfræðingur og erum
við búin að vera saman síðan við vorum
sautján ára og eigum við þrjú börn.“
Áhugamál Gerðar eru mörg og fjölbreytt
og eins og gefur að skilja tengjast þau fjöl-
skyldunni og útivist: „Útivera hefur alla
tíð verið mitt áhugamál, en það verður að
segjast eins og er að áhugi minn jókst mikið
eftir að ég fór að vinna hjá Útilíf. Annars
eigum við sumarbústað í Grafningnum,
sem við sækjum mikið í hvort sem er
sumar eða vetur. Þetta er unaðsreitur fjöl-
skyldunnar og þar erum við með bát sem
við notum þegar tækifæri gefst og siglum
um vatnið.
Heima reynum við svo að gera skemmti-
lega hluti saman. Við búum í Fossvoginum
og þar er stutt leið í margt sem fjölskyldan
getur gert saman. Stutt er á stígana og við
förum öll á línuskauta og hjólum eins oft og
tækifæri gefst. Við hjónin förum á sumrin
í gönguferðir og fórum „Laugaveginn“ í frá-
bæru veðri í sumar. Höfum gert það einu
sinni áður og þá var brjálað veður þannig
að þessar tvær ferðir voru eins og svart og
hvítt.
Ég hef verið á skíðum frá því ég var lítil
og sama er að segja um börnin mín og Óskar
er einnig skíðamaður og eru skíðin enn eitt
áhugamálið hjá fjölskyldunni. Öll fjölskyldan
fór í fyrsta sinn saman til Austurríkis síðast-
liðinn vetur og er meiningin er að endurtaka
það í vetur enda heppnaðist ferðin einstak-
lega vel og allir fjölskyldumeðlimirnir mjög
ánægðir með ferðina.“
FÓLK
Nafn: Gerður Ríkharðsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 14. júní
1963.
Foreldrar: Ríkharður Kristjánsson og
Brynhildur Þorsteinsdóttir.
Maki: Óskar Örn Jónsson.
Börn: Telma Dögg, 12 ára, Jón Andri,
8 ára, Harpa, 6 ára.
Menntun: Masterspróf í markaðs-
fræðum og masterspróf í
starfsmannastjórnun.
Gerður
Ríkharðsdóttir framkvæmdastjóri Útilífs
Gerður Ríkharðsdóttir.
„Við fórum „Laugaveg-
inn“ í frábæru veðri
í sumar. Höfum gert
það einu sinni áður og
þá var brjálað veður
þannig að þessar tvær
ferðir voru eins og
svart og hvítt.“
Ræ›st gegn verkjum!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I‹
/
S
ÍA
/
A
C
T
A
V
IS
5
0
7
0
3
1
Notkunarsvi›: Paratabs inniheldur parasetamól sem er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. fia› er nota› vi› höfu›verk,
tannpínu, tí›averkjum o.fl. Einnig vi› sótthita af völdum inflúensu og annarra umgangspesta eins og kvefs. Lyfi›
inniheldur ekki ávanabindandi efni og hefur ekki sljóvgandi áhrif. Varú›arreglur: Fólk sem hefur ofnæmi
fyrir parasetamóli e›a er me› lifrarsjúkdóma má ekki nota lyfi›. N‡rna- og lifrarsjúklingum er bent á
a› rá›færa sig vi› lækni á›ur en fleir taka lyfi›. Of stór skammtur getur valdi› lifrarbólgu. Aukaverkanir:
Parasetamól veldur sjaldan aukaverkunum og flolist yfirleitt vel í maga. Langvarandi notkun lyfsins
getur valdi› n‡rnaskemmdum. Skömmtun: Nákvæmar lei›beiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekki
má taka stærri skammta en mælt er me›. Lesi› vandlega lei›beiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.05
Paratabs® – Öflugur verkjabani!