Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 63
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 63
Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir leikritaskáld stundaði
framhaldsnám í gítarleik í bænum
Alcoy í Valencia-héraði fyrir tæpum
20 árum. Hún varði um hálfu ári í
námið. Eftir um hálft ár lagði hún
gítarinn á hilluna og hóf að skrifa
verðlaunaleikritið Ég er meistarinn
sem fjallar um þrjá gítarleikara.
Það var sýnt í Borgarleikhúsinu
árið 1990. Þess má geta að Hrafn-
hildur er eina konan sem lokið
hefur burtfararprófi í klassískum
gítarleik hér á landi.
Hún vann í mörg sumur sem
fararstjóri og þá aðallega í Tor-
remolinos.
„Ég varð strax ástfangin af
Spáni og þá sérstaklega þegar ég
fór að geta bjargað mér á málinu.
Spánverjar eru yndislegt fólk. Þeir
eru skemmtilegir, tilfinningaríkir,
blátt áfram og með góðan húmor.
Það er enginn hroki í þeim.
Spánn er kraumandi suðu-
pottur. Þetta er land í örum vexti
að öllu leyti. Það lýsir sér bæði
hvað varðar listir og viðskipti. Fyrir
örfáum árum voru Spánverjar aftar-
lega á merinni miðað við mörg Evr-
ópulönd en þeir tóku kipp. Núna
fjárfesta margir á Spáni og sjá hag
í að tengjast landinu.“
Hrafnhildur, eiginmaður hennar,
Pétur Jónasson gítarleikari, og
dóttir þeirra flytja til Spánar
eftir áramót. Þau munu búa í
Andalúsíu. Hún ætlar að einbeita
sér að skrifum. Hann ætlar að und-
irbúa plötuupptökur og tónleika.
HRAFNHILDUR HAGALÍN:
KRAUMANDI SUÐUPOTTUR
„Spánn er kraumandi suðupottur,“ segir Hrafnhildur Hagalín.
HABLO ESPAÑOL
Listaverk. Það er það orð
sem kemur upp í hugann
þegar maður hugsar um
Barcelona. Hvergi hefur
maður séð byggingar eins
og þar. Sumar gætu verið úr
ævintýrum. Enda má segja að
Barcelona sé ævintýraborg
fyrir þá sem hafa áhuga á
byggingalist.
Þessar sérstöku byggingar
voru hannaðar og byggðar
þegar módernisminn réði
ríkjum í lok 19. aldar og í
upphafi 20. aldar. Antoni
Gaudí i Cornet er þekktasti
arkitektinn frá þessum tíma.
Hans þekktasta verk er
án nokkurs vafa kirkjan La
Sagrada Familia sem er enn
í byggingu. Hún er ímynd
Barcelona og módernismans
þar í borg. Þá er Parque Güell
mjög þekktur en hann ein-
kenna m.a. bogadregin form
og flísar.
Þetta er eins og að vera
komin í annan heim.
LISTAVERK UNDIR
BERUM HIMNI
La Pedrera (1906-1910).
Arkitekt: Gaudí.
La Sagrada Familia.
Arkitekt: Gaudí.