Frjáls verslun - 01.09.2005, Blaðsíða 21
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 21
„Þessi mikli vöxtur á sér margar skýringar,“ segir
Svafa. „Aukningin hér innanlands skýrist líka af fjölgun
starfsfólks í ýmiss konar samþættingarstarfi, svo sem
þróunarvinnu, fjármálum, gæðaeftirliti, samskiptum og
starfsmannastjórn og svo má lengi telja. Um 500 starfs-
menn starfa við þróun í samstæðunni, þar af 110 á Íslandi
þar sem þróunarstarfi er stýrt. Þannig skapast sérhæfð
störf fyrir háskólamenntað fólk eftir því sem fyrirtækið
stækkar. Hingað hefur verið ráðið til starfa kappsamt fólk
sem beinlínis hungrar í að sjá árangur af störfum sínum.
Þetta fólk smitar út frá sér, eljusemi þess er líkust góð-
kynja smitandi vírus,“ segir Svafa.
Forystuhugsun á öllum sviðum „Eitt af mínum helstu við-
fangsefnum hér hjá Actavis hefur einmitt verið að finna út
hvernig við getum ræktað upp og viðhaldið forystuhugsun
á öllum sviðum,“ heldur Svafa áfram. „Lykill að örum vexti
er að hver og einn starfsmaður hafi þessa hugsun og leggi
því stolt sitt í að byggja upp starfsemi fyrirtækisins, hvert
á sínu sviði. Að þetta sé ekki bara starf, heldur ljúf skylda.
Mitt verkefni hefur einnig verið að einfalda og skýra skipu-
lag fyrirtækisins þannig að við getum hreyft okkur hraðar
en keppinautarnir. Alþjóðafyrirtæki sem ná bestum árangri
í dag hafa skýran heildarramma og -stefnu. Þau safna til sín
fólki sem finnur bestu leiðina á hverjum tíma til að fram-
fylgja stefnunni og ná settum markmiðum. Því leggjum við
kapp á að finna hæft og sjálfstætt hugsandi fólk sem getur
lagað sig að hvaða aðstæðum sem er, hratt og örugglega.
Þannig verðum við léttari, hraðari og sveigjanlegri en ýmsir
keppinautar okkar, sem hafa miðstýringu sem þungamiðju
í sinni stjórnun. Við leggjum kapp á að brjóta niður alla
fílabeinsturna.“
Stjórnendahópur Actavis er í dag mjög alþjóðlegur. Því
þarf skýra sameiginlega sýn á viðfangsefni, forgangsröðun
FORSÍÐUGREIN • SVAFA GRÖNFELDT
Svafa Grönfeldt, aðstoðarforstjóri og Róbert Wessman, forstjóri
Actavis Group, ásamt samstarfsfólki í eldlínunni á Búðum.
Fyrir skömmu komu nokkrir af helstu stjórnendum
Alpharma í heimsókn hingað til lands. Með þeim var
fundað helgarlangt á Hótel Búðum á Snæfellsnesi og við
brennu í húmi nætur - með magnaða strauma Snæfells-
jökuls yfir og allt um kring - var sjálfur sameiningarseið-
urinn framkallaður. Galdralyfið sem fær fólk til að skynja
sig í einu og sama liðinu þótt höf og álfur skilji að.