Frjáls verslun - 01.09.2005, Side 47
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5 47
Publishing til að sjá um útgáfu fræðslu- og
skemmtiefnis auk tölvuleikja. Ólafur átti
meðal annars þátt í þróun geisladisksins og
Playstation leikjatölvunnar.
Í grein í Morgunblaðinu 15. febrúar 1994
segir: „Árið 1991 valdi Michael Schulhof aðal-
forstjóri Sony í Bandaríkjunum, Ólaf Jóhann
til að byggja upp nýja deild, Sony Electronic
Publishing, en með henni vildi hann færa
fyrirtækið inn á svið tölvuleikja og slíkrar
skemmtunar. „Ég þurfti á einhverjum að
halda sem gat bæði verið skapandi og þekkti
tæknina,“ segir Schulhof. „Ólafur er einn af
þeim óvenjulegu mönnum sem geta rætt
um viðskiptalegar hliðar Sony Electronic
Publishing við náunga í gallabuxum. Hann
hefur víðfeðman menningarlegan bakgrunn.
Það er mikilvægt að háttsettir yfirmenn séu
víðsýnir.“
Mike Medavoy, fyrrum stjórnarformaður
TriStar-kvikmyndafyrirtækisins, segir
að Ólafur Jóhann sé einn af þeim stóru
í skemmtanaheiminum í dag, „og einn af
fáum sem geta talað um eitthvað annað en
kvikmyndir. Hann er ákaflega uppfinninga-
samur og þekkir heim tölvuleikja mjög vel.
Hann getur litið á handrit að nýjum leik og
séð hvernig má þróa það áfram og verið
mjög íslenskur á sama tíma.“
Ólafur hætti hjá Sony eftir að upp kom
ágreiningur við yfirmenn Sony í Japan um
verðlagningu á Playstation leikjatölvunni.
Ólafur barðist fyrir því að verði á leikja-
tölvunni yrði haldið niðri og hafði sigur en
kom sér um leið út úr húsi hjá háttsettum
forsvarsmönnum Sony í aðalstöðvum fyrir-
tækisins í Japan.
Eftir að Ólafur hætti hjá Sony fjárfesti
hann og sat í stjórn fjögurra fyrirtækja sem
öll tengdust fjármálaumsýslu og margmiðlun
af einhverju tagi og um tíma átti hann í við-
ræðum um að taka við aðalframkvæmda-
stjórastöðu hjá Apple Computer Inc. en
ekkert varð úr þeirri ráðningu.
Árið 1996 hóf Ólafur Jóhann störf sem
aðstoðarstjórnarformaður hjá fjárfestingafyr-
irtækinu Advanta. Hann var ráðinn sem
varastjórnarformaður hjá Time Warner Digi-
tal Media árið 1999 og tók þátt í samninga-
viðræðum sem leiddu til samruna Time
Warner og America Online, stærsta fjölmiðl-
unarfyrirtækis heims á sínum tíma. Eins og
stendur leiðir Ólafur viðræður um samvinnu
netdeildar America Online og netdeilda
Microsoft, MSN, um dreifingu á leitarvél
fyrir viðskiptavini AOL.
Ólafur Jóhann er giftur Önnu Ólafsdóttur
og eiga þau þrjú börn, tvo drengi, sem heita
Ólafur Jóhann og Árni Jóhann og eru tólf
og tíu ára gamlir, og eina stúlku sem heitir
Sóley og er eins árs. Fjölskyldan á íbúð á
Manhattan og hundrað ára gamalt sveitahús
í listamannanýlendunni Sag Harbor á Long
Island. Auk þess sem þau eiga glæsilegt
einbýlishús í Reykjavík þar sem fjölskyldan
dvelur þegar hún er stödd á Íslandi og fyrir
skömmu festu hjónin kaup á landi undir sum-
arbústað á Þingvöllum. Ólafur er sagður lífs-
nautnamaður, hafa gaman af því að borða
góðan mat og drekka góð vín sem hann
hefur nokkra þekkingu á.
Afkastamikill rithöfundur
Þrátt fyrir miklar annir í starfi hefur Ólafur
gefið sér tíma til að sinna öðru hugðarefni
sínu sem er ritstörf. Allt frá því að Ólafur
gaf út sína fyrstu bók hefur hann verið einn
vinsælasti rithöfundur landsins, bækur hans
hafa trónað á toppi metsölulista hér á landi,
verið tilnefndar til ýmissa verðlauna og
þýddar á fjölda tungumála. Smásagnasafnið
Níu lyklar kom út 1986 en af öðrum bókum
Ólafs Jóhanns má nefna Markaðstorg guð-
anna (1988), Fyrirgefningu syndanna (1991)
og Slóð fiðrildanna (1999) sem jafnframt var
gefin út í Bandaríkjunum af Random House.
Sniglaveislan kom út 1994 og var leikgerð
hennar frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
2001. Lávarður heims kom út árið 1996 og
Sakleysingjarnir 2004.
Unnið er að því að kvikmynda Slóð fiðrild-
anna í Hollywood og mun sænska leikkonan
Liv Ulman leikstýra myndinni auk þess sem
uppi eru hugmyndir um að kvikmynda fleiri
sögur eftir hann. Leikritið Fjögur hjörtu naut
einnig mikilla viðsælda. Ólafur Jóhann mun
einnig hafa fengist við ljóðagerð en ekki
viljað birta neitt af þeim enn sem komið er.
Ólafur Jóhann sagði einu sinni í viðtali að
hann reyndi að skrifa bækur fyrir sem flesta
og skildi ekki það sjónarmið að skrifa eitt-
hvað sem aðeins fáir útvaldir skildu.
Nafn: Ólafur Jóhann Ólafsson.
Fæddur: 26. september 1962.
Maki: Anna Ólafsdóttir.
Börn: Ólafur Jóhann, 12 ára, Árni Jóhann,
10 ára, Sóley, 1 árs.
Heimili: Íbúð á Manhattan, sveitahús á
Long Island og einbýlishús í Reykjavík.
N Æ R M Y N D - Ó L A F U R J Ó H A N N Ó L A F S S O N
ÓLAFUR SEMUR ALLAN DAGINN
Kolbrún Bergþórsdóttir
bókmenntafræðingur segir að
Ólafur Jóhann sé bæði gamal-
dags og rómantískur rithöfundur
í jákvæðustu merkingu þeirra
orða þegar honum tekst vel til,
en hún segir líka að hann sé
gríðarlega mistækur og blandan
verði „banal“ þegar hann
er upp á sitt versta.