Frjáls verslun - 01.09.2005, Page 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
H
ótelrekstur er afskaplega skemmti-
legt viðfangsefni, hann felur í
sér mikil mannleg samskipti og
krefst þess að gerðar séu áætlanir
fram í tímann. Enda ganga margir með hót-
eldrauma í maganum, gestrisni virðist okkur
í blóð borin og hluti af mannlegu eðli,“ segir
Ólafur Torfason, hótelstjóri Grand Hótels
Reykjavíkur, þar sem nýhafnar eru stórfram-
kvæmdir.
Verið er að reisa tvo þrettán hæða sam-
byggða turna sunnan við hótelið, sem
stendur við Sigtún, og verða þeir tengdir
eldri byggingum með 650 fermetra yfirbygg-
ingu úr gleri. Undirbúningur fyrir þessa stóru
framkvæmd hófst árið 1999. Í glerbygging-
unni mun móttaka og veitingaaðstaða verða
til húsa. Í turnunum verða 212 ný herbergi,
þrír ráðstefnusalir, tvö fundaherbergi, tvær
höfðingjasvítur, afþreyingarherbergi og
heilsurækt. „Þess má geta að í dag eru
herbergin á Grand Hóteli 108, en eldri her-
bergjum kemur til með að fækka eitthvað
við breytingarnar og verður heildarfjöldi
þeirra 316 talsins þegar stækkað Grand
Hótel verður opnað 16. mars 2007, klukkan
9:00 að morgni,“ segir Ólafur kíminn.
Ferðaþjónustan heillandi atvinnugrein
Ólafur kemur úr fjölskyldu kaupmanna. „For-
feður mínir hafa verið kaupmenn, kaupfé-
lagsstjórar o.þ.h. í gegnum aldirnar. Langafi
minn, afi, pabbi og ég vorum til að mynda
allir með verslanir í Þingholtunum í Reykja-
vík. Ég var og er einnig hluthafi í Kaupgarði
í Kópavogi og í Garðakaupum í miðbæ
Garðabæjar. Til hliðar var ég svo í bygginga-
bransanum.“
Hótelrekstur blundaði þó í honum frá
unga aldri. „Ég man eftir að hafa pælt í að
breyta farsóttarspítala við Þingholtsstræti í
hótel, þá um tvítugt, en ekkert varð úr því.“
Hinn eiginlegi hótelrekstur hófst svo fyrir
algera tilviljun árið 1991. Hann eignaðist,
ásamt öðrum, húsnæði við Rauðarárstíg
sem ætlunin var að selja sem skrifstofu-
húsnæði. Sú áætlun brást og var því gripið
til þess ráðs að opna þar gistiheimili með
30 herbergjum og fékk það nafnið Hótel
Reykjavík. Ári síðar var hótelið stækkað um
helming og var Ólafur þá með 60 herbergi
á sínum snærum. Í dag er herbergjafjöldi á
Rauðarárstíg 79.
Það var svo í mars árið 1995 sem hann
í félagi með fleirum kaupir húsnæði Grand
Hótels Reykjavíkur við Sigtún. Á síðasta ári
hófst svo undirbúningur að opnun hótels að
Aðalstræti 16 og hófst sá rekstur 1. apríl s.l.
undir heitinu Hótel Reykjavík Centrum. Um
er að ræða 89 herbergi ásamt veitingaað-
stöðu (Fjalakötturinn og Uppsalir), en hús-
næðið er í eigu Fasteignafélagsins Stoða hf.
„Auk þessa er ég með um 30% aðild að
Fosshótelum, sem reka hótel um allt land
og er mjög áhugavert dæmi. Mér finnst
ferðaþjónustan heillandi atvinnugrein,“ segir
hann.
Efnahagsumhverfi betra Ólafur er því orð-
inn nokkuð stórtækur í hótelrekstri hér á
landi, hann verður með tæplega 500 hótel-
herbergi á sínum snærum þegar turnarnir
tveir hafa verið teknir í gagnið. Áætlanir gera
ráð fyrir því að kostnaðurinn við byggingu
þeirra verði tveir og hálfur milljarður með
virðisaukaskatti og er kostnaður fjármagn-
aður með lánsfé og eigin fé, auk þess sem
hluthafar leggja til aukið hlutafé.
„Efnahagslegt umhverfi til hótelrekstrar
í dag hefur lagast en hér áður fyrr var ekki
gott. Ég hef alltaf sagt að sú reynsla sem við
fengum af því að tvær bankastofnanir áttu
og ráku hótel til skamms tíma hafi verið
slæm fyrir hótelbransann. Þeir töpuðu pen-
ingum á þeim rekstri og voru tregir til að
veita fjármagni í greinina eftir þá reynslu. Í
dag hafa þó aðrir, yngri stjórnendur tekið
við og þeir bera með sér ný viðhorf. Greinin
hefur líka vaxið og komist að mestu yfir þá
erfiðleika sem hún gekk í gegnum í kringum
árið 1990.“
Samkvæmt Ólafi eru nokkrar blikur á lofti
um þessar mundir og hafa menn áhyggjur af
því hvernig næsta ár muni koma út, ekki síst
vegna þess hversu óhagstætt gengi íslensku
krónunnar er ferðaþjónustunni. „Mikið af
G R A N D H Ó T E L S T Æ K K A R
TEXTI: ÓLÖF SNÆHÓLM BALDURSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON og ARKFORM
Grand Hótel er að reisa tvo þrettán hæða sambyggða
turna við hótelið. Þeir eru með hæstu húsum í borginni.
Þetta er fjárfesting fyrir 2,5 milljarða króna.
TVEIR ÞRETTÁN
HÆÐA TURNAR