Frjáls verslun - 01.09.2005, Qupperneq 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 5
S
karphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmda-
stjóri fjárfestinga Baugs Group á Norðurlönd-
unum (Nordic fjárfestinga), og stjórnarformaður
FL Group, situr í stjórnum átta fyrirtækja. Hann
kemur því víða við. Seta hans í stjórnum er hluti af
starfi hans hjá Baugi Group. Skarphéðinn hefur verið
í framvarðarsveit Baugsmanna í útrás fyrirtækisins á
Norðurlöndum, útrás sem vakið hefur mikið umtal,
ekki síst í Danmörku.
Sjálfur segist Skarphéðinn Berg ekki hafa tölu á
þeim stjórnum sem hann situr í. „Veistu, ég hef hrein-
lega ekki talið það saman,“ svarar hann þegar spurt er
í hversu mörgum stjórnum hann sitji.
„Ég er stjórnarformaður í stjórnum FL Group, Dags-
brúnar (móðurfélags Og Vodafone, 365 prentmiðla
og 365 ljósvakamiðla og Húsasmiðjunnar. Svo sit ég
í stjórnum Fasteignafélagsins Stoðar og Þyrpingar og
í Danmörku sit ég í stjórnum Magasin du Nord, Illum
og Keops.“
Og hann bætir við: „Ef þú fengir útprent hjá hluta-
hafaskrá væri þessi tala sjálfsagt eitthvað hærri, en
mér finnst það ekki gefa alveg rétta mynd þar sem
um dótturfélög þessara fyrirtækja er að ræða. Ég sit í
stjórnum átta fyrirtækja en svo tengjast þau félögum
sem ég er líka stjórnarmaður í. Ég sit til dæmis í stjórn
Húsasmiðjunnar en líka í Eignarhaldsfélagi Húsasmiðj-
unnar. Störfin sem ég vinn fyrir bæði félögin eru hins
vegar þau sömu enda reksturinn sá sami.“
Er ekki „stjórnarmaður Íslands“
Skarphéðinn hlær þegar blaðamaður spyr hvort
hann sætti sig ekki við að vera kallaður „stjórnar-
maður Íslands“ í ljósi þess að hann er stjórnarfor-
maður í þremur stórum fyrirtækjum hér á landi,
situr í stjórnum fimm annarra fyrirtækja, og er
svo framkvæmdastjóri í ofanálag. Hvernig gengur
honum að sinna þessu öllu?
S T J Ó R N A R S E T A
TEXTI: JÓN KNÚTUR
ÁSMUNDSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Nýr stjórnarformaður FL Group, Skarphéðinn Berg Steinarsson, situr í
stjórnum átta fyrirtækja. Auk stjórnarformennsku í FL Group sinnir hann
stjórnarformennsku í Dagsbrún (Og fjarskiptum) og Húsasmiðjunni.
Skarphéðinn Berg
Steinarsson situr í
stjórnum átta fyrirtækja,
auk annarra minni
félaga sem tengjast
þessum fyrirtækjum.
Hann segir það vera
hluta af starfi sínu hjá
Baugi að sitja í þessum
stjórnum og hann geti
tæplegast talist „stjórn-
armaður Íslands“.
SKARPHÉÐINN BERG
situr í fjölda stjórna