Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 14
FRÉTTIR
14 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
N
úna er tími golfmótanna.
Golfmót Esso fór nýlega
fram á Grafarholtsvelli og
var spilað fram yfir miðnætti á
föstudagskvöldi. Fyrirkomulag
mótsins var Texas Scramble
og vakti það nokkra ánægju. Í
þessu leikfyrirkomulagi spiluðu
fjórir saman í liði og gilti besta
högg liðsins hverju sinni.
Ingimundur Ingimundarson hjá HP-Granda, Knútur G. Hauksson, forstjóri Heklu,
og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.
Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli, og
Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. Myndir: Geir Ólafsson.
Menn að gera sig klára áður en haldið var út í kvöldið til að slá og
koma, sjá og sigra.
Texas Scramble
hjá ESSO
A
thygli ehf. hefur flutt starfsemi
sína í nýinnréttað húsnæði að
Síðumúla 1 í Reykjavík en þar
starfa 10 starfsmenn að ráðgjöf í
almannatengslum og útgáfu. Að
auki er fyrirtækið með starfsstöð að
Hafnarstræti 82 á Akureyri en þar
eru tveir starfsmenn. Athygli fagnar
einnig 16 ára starfsafmæli um
þessar mundir. Aðaleigendur Athygli
ehf. eru þeir Valþór Hlöðversson
framkvæmdastjóri og Atli Rúnar
Halldórsson ráðgjafi.
Kári Jónasson, ritstjóri Fréttablaðsins, og
Gunnar E. Kvaran, ráðgjafi hjá Athygli.
Sigurður Jónsson frá Viðskiptablaðinu,
Stefán Hjaltalín frá Gutenberg og Guðmundur
Þorsteinsson prentsmiður.
Athygli í nýtt húsnæði