Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 136
KYNNING
Ekki eru allir jafnlánsamir og Auður I. Ottesen ritstjóri að geta sameinað vinnu og áhugamál. Fyrirtækið Sumarhúsið og garðurinn ehf., sem
Auður stýrir, gefur út samnefnt tímarit, bókaflokk-
inn Við ræktum og stendur auk þess að sýninga-
haldi. Sumarið 2005 var fjórða sýningin sem fyrirtækið
hefur haldið. Sumarhúsið og garðurinn kemur út fimm
sinnum á ári og í ráði er að auka útgáfuna í takt við
óskir lesenda.
Auður er garðyrkjufræðingur og smiður og rekur
fyrirtækið með eiginmanni sínum, Páli Péturssyni. Hann
er meðritstjóri, útlitshönnuður og ljósmyndari blaðs-
ins sem hefur verið í eigu þeirra hjóna síðustu 12 ár
og vaxið og þróast úr 16 síðna dreifiriti í metnaðar-
fullt tímarit í áskrift og lausasölu. Sumarhúsið og
garðurinn fjallar um lífið í bústaðnum, garðrækt,
umhverfismál, útivist og afþreyingu. Margir telja að
tímaritið Sumarhúsið og garðurinn sé gefið út af
Landsambandi sumarhúsaeigenda, en Auður tekur fram að svo sé
ekki. Sumarhúsið og garðurinn er sjálfstætt tímarit sem fjallar um
lífið í bústaðnum, garðrækt, umhverfismál, útivist og afþreyingu.
Sýningar og námskeið Á tíu ára afmæli Sumarhússins og garðsins
var ákveðið að efna til sýningar. Nú eru sýningarnar orðnar fjórar og
hafa þær stækkað frá ári til árs. Fjölbreytnin hefur aukist og fjalla þær
nú um allt sem tengist sumrinu. Sýningin Sumarið 2005
var haldin í Fífunni í vor og tengdist afþreyingu og ferða-
lögum jafnt sem sumarhúsum og garðrækt, enda kemur
mönnum vel að kynnast því hvað er í boði í nágrenni
sumarhússins.
Í vor kom út fyrsta bókin í nýjum bókaflokki, Við
ræktum, hún heitir Garðurinn allt árið og fjallar um
garðverkin. Í hverri bók verða tekin fyrir sértæk
efni. Síðar á árinu koma út bækur um lauftré og við-
arnytjar. „Þekkingin er fyrir hendi hjá okkur og við
eigum stórt myndasafn tengt þessu efni auk þess
sem ýmsir fagmenn leggja okkur lið,“ segir Auður
og bætir við að kennsla og fræðsla sé nýr liður í
starfsemi fyrirtækisins og ætlunin sé að auka nám-
skeiðahald. Markmiðið sé m.a. að kenna fólki að
nýta það sem er að finna í nánasta umhverfi þess.
Gott dæmi er námskeið Önnu Maríu Pálsdóttur sem
kenndi fólki að vefa úr viðarteinungum.
Á heimasíðu Sumarhússins og garðsins, www.rit.is, er að finna
upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins og góð ráð. Þar verður einnig
hægt að skoða þjónustuskrána sem birtist í Sumarhúsinu og garð-
inum og auðveldar fólki að finna ýmsar vörur og þjónustu. Loks ber
að nefna Netklúbb áskrifenda tímaritsins. Þar skrá menn sig vilji þeir
fá sent fréttabréf á Netinu með góðum ráðum og upplýsingar um
ýmis tilboð.
Útgáfa, sýningar- og
námskeiðahald í fyrirrúmi
SUMARHÚSIÐ OG GARÐURINN
Sumarhúsið og garður-
inn er vandað tímarit
um áhugavert efni.
Auður Ottesen,
framkvæmdastjóri,
og annar tveggja
ritstjóra tímaritsins
Sumarhúsið og
garðurinn.
136 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5