Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 81

Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 81
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 81 Halla Tómasdóttir lektor, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir var verkefnastjóri og Inga Dóra Halldórsdóttir fræðslufulltrúi. Var öll stjórnun AUÐAR til stakrar fyrirmyndar í þeirra höndum. Námskeiðunum var beint að ýmsum þáttum sem skipta máli í atvinnurekstri: FjármálaAUÐUR, LeiðtogaAUÐUR, Frum- kvöðlaAUÐUR og FramtíðarAUÐUR. Voru þau öll vel sótt og konurnar almennt mjög ánægðar með tilhögun þeirra. Tilgangur FjármálaAUÐAR var að auka hagnýta þekkingu kvenna á fjármálum. Markmiðið var að konurnar öðluðust meiri þekkingu og sjálfstraust á sviði fjármálaum- sýslu og ættu auðveldara með að líta á sig sem fjármálaverur. Markmið LeiðtogaAUÐAR var að gefa konum í leiðtogastöðum tækifæri til að efla hæfileika sína sem leiðtogar og gefa þeim kost á að styrkja tengslanet sín á milli. Þá var einnig gengið út frá því að þessar konur yrðu öðrum konum stuðningur og fyrir- mynd seinna meir. Markmið FrumkvöðlaAUÐAR var að veita konum hvatningu og stuðning til þess að auka hæfni sína og möguleika á að koma á fót fyrirtækjum sem gætu náð örum vexti og viðhaldið honum. Í FramtíðarAUÐI var síðan blandað saman fróðleik og skemmtun og stúlkum á aldrinum 13-16 ára gefinn kostur á að taka þátt í ritgerðasamkeppni um nýsköpun til þess að auka áhuga þeirra og áræði. Allt námskeiðahald AUÐAR-verkefnisins miðaðist að því að konur tækju þátt í að skapa fleiri störf og auka hagvöxt landsins. Hóparnir studdu síðan hver annan og við það margfaldaðist það afl sem býr í krafti kvenna. AUÐAR-verkefninu lauk í byrjun þessa árs og þegar horft er yfir farinn veg er ástæða til að fyllast bjartsýni fyrir hönd kvenna í atvinnulífi á Íslandi. Fjöldi nýrra starfa hefur litið dagsins ljós, viðskiptahugmyndir hafa fæðst og þróast og fjöldi kvenna sem kynntist í þessu átaki starfar enn saman að uppbyggingu sem enn á eftir að skila sér út í atvinnulífið. Auður lifir enn í hugum og hjörtum kvennanna sem tóku þátt í starfinu Það var frábært að taka þátt í þessu starfi og það skildi mikið eftir sig hjá öllum sem komu að því. AUÐUR í krafti kvenna náði til allrar þjóðarinnar á sinn hátt og það á vel við konur að vera hluti af stórum verkefnum og að hafa tilgang með verkum sínum. Allir sem komu nálægt þessu átaki voru mjög virkir og gáfu svo mikið af sér að það varð til einstaklega góður og uppbyggjandi andi sem lifir enn á meðal fólksins. Þetta átaksverkefni stendur skör hærra en önnur svipuð erlendis, enda var vel til þess vandað. Við tókum það besta frá Bandaríkjunum og Írlandi og endurbættum það áður en við fórum af stað með Auðarátakið og þessi góði undirbúningur skilaði sér í frábæru starfi. Auður í krafti kvenna hlaut viðurkenningu Evrópusambandsins sem „Best Practice“ á þessu sviði í Evrópu og það er enn að vekja athygli erlendis. Innan Auðar urðu til sambönd kvenna sem starfa enn saman og vinna að framförum og við eigum enn eftir að sjá árangur þessa starfs áfram. Með AUÐI varð til hugmyndafræði sem deyr ekki meðal kvennanna. Ég hitti oft konur sem tóku þátt í Auðarverkefninu og margar þeirra hafa sagt mér að þátttakan hafi einfaldlega breytt lífi þeirra. Auður lifir enn í hugum og hjörtum þeirra, hún olli hugarfarsbreytingu sem á lengi eftir að skila sér út í þjóðfélagið til hagsbóta fyrir alla. Halla Tómasdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri AUÐAR í krafti kvenna og lektor við Háskólann í Reykjavík:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.