Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 116
116 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Við hjá Kynnisferðum leggjum áherslu á að koma stöðugt fram með eitthvað nýtt og spennandi í tengslum við starfsemina,“ segir Birna Lind Björnsdóttir, sölu og markaðsstjóri. „Nú síðast
opnaði fyrirtækið Gallery Kynnisferðir á Hótel Nordica.“ Þar verður
ferðasala auk verslunar sem hefur einungis á boðstólum íslenska
hönnun í hæsta gæðaflokki.“
Kynnisferðir hafa rekið ferðasölu á Hótel Nordica en nýlega
losnaði þar húsrými Rammagerðarinnar og var þá ákveðið að opna
Gallery Kynnisferðir. „Björgvin Snæbjörnsson arkitekt, sem hannaði
Nordica, kom með hugmyndir að útliti verslunarinnar í samræmi við
glæsilegt útlit hótelsins sjálfs og ásamt Rúnu Kristinsdóttur, ráðgjafa
og hönnuði, þróuðum við saman hugmyndirnar svo úr varð þessi
fallega verslun. Dagsferðasala Kynnisferða, Flugrútan, og önnur ferða-
sala verður í versluninni og að auki góð íslensk hönnun, enda viljum
við færa Kynnisferðir enn ofar í flokki í samræmi við gæði dagsferð-
anna sem fyrirtækið heldur uppi,“ segir Birna Lind.
Íslensk hönnun og ljósmyndir Í Gallery Kynnisferðum fást íslenskir
skartgripir frá Hendrikku Waage, Or á Laugavegi og Aurum á Skóla-
vörðustíg, ólíkir að stíl en allt íslensk hönnun. Þar verður fatnaður frá
Ástu Clothes og skyrtur og bindi frá Indriða klæðskera. Svarthvítar
ljósmyndir eftir Pál Stefánsson ljósmyndara prýða herbergi hótelsins
og hafa vakið mikla athygli. Þær verða seldar innrammaðar í gallerí-
inu. Aðrir listamenn sem leggja sitt af mörkum eru Kogga og konurnar
í Kirsuberjatrénu en allt fellur þetta að stíl gallerísins.
Ráðstefnugestir stansa oft stutt við að sögn Birnu Lindar og hafa
jafnvel ekki tíma til að leita uppi fallega hluti en gefst nú kostur á því
í Gallery Kynnisferðum. Auk íslenskrar hönnunar og listmuna geta
gestir keypt nærfatnað, sokka og sokkabuxur og svo erum við með
sams konar ferðabúnað og Saga Class farþegar Icelandair fá, með
nauðsynlegum snyrtivörum sem fólk getur látið nægja ef ferðataskan
tefst. Fyrst og síðast verður þó lögð áhersla á sölu dagsferða og ann-
arra ferða sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða. Loks má geta þess að
ætlunin er að ágóði af sölu ákveðinna muna renni til góðgerðarmála.
Verslunarstjóri Gallery Kynnisferða er Guðríður Stefánsdóttir.
„Við trúum því að rekstur Gallery Kynnisferða gangi vel, enda
vörur og verslun í fullu samræmi við stíl Hótels Nordica. Kynnisferðir
hafa líka opnað ferðasölu í Iðu við Lækjargötu og hannaði Björgvin
Snæbjörnsson umhverfið þar ásamt Rúnu Kristinsdóttur, ráðgjafa og
hönnuði.
GALLERY KYNNISFERÐIR
Spennandi nýjungar hjá Kynnisferðum
Kynnisferðir hafa
opnað Gallery
Kynnisferðir og
ferðasölu í Iðu.
Birna Lind Björnsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Kynnisferða, og Guðríður Stefánsdóttir í Gallery Kynnisferðir á Hótel Nordica.
KYNNING