Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
F imm stjörnu nudd- og snyrtistofa er eitt af mörgu sem býðst í Laugum, heilsuræktarstöð World Class í Laugardal. Frábært fagfólk veitir gestum góða þjónustu og fyrsta flokks slökun frá
amstri dagsins. Unnið er með vörum frá E´Spa, sem eru þekktar um
allan heim. E’Spa vörur eru unnar úr hágæða hrá-
efnum úr náttúrunni og eru þekktar fyrir hreinleika
og gæði.
Nudd og Baðstofa „Hér er hægt að velja um fimmtíu
möguleika í nuddi og snyrtingu. Þar fara saman forn
fræði og nútíma þekking í bland við þau gæði sem
náttúran býður. Aðsóknin hér er mikil og fer stöðugt
vaxandi. Gjafakort í nudd hér verða stöðugt vinsælli
og margir sem vilja gera virkilega vel við sjálfan sig koma hingað,
hvort heldur er fyrir líkama eða sál,“ segir Hafdís Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lauga - Spa, best þekkt sem Dísa í World Class.
Baðstofan í Laugum er um 500 fermetrar. Gufuböðin eru sex og
hvert með sínu hitastigi og í bakgrunni má heyra þægileg hljóð eða
slökunartónlist - sem skapar þau hughrif að gestir ná að slaka virki-
lega vel á. Fólk getur sömuleiðis valið á milli heitra og kaldra sturtu-
baða, eða þá tyllt sér í hægindastóla í glæsilegri arinstofu.
Heildræn meðferð Í Laugum eru fimmtán sérútbúin herbergi fyrir
gesti í nudd- og snyrtimeðferð. E´Spa-upplifun er ein þeirra með-
ferðarmöguleika sem bjóðast. „Slík meðferð losar djúpa spennu í
húðinni ásamt því að stinna og þétta þroskaða húð. Einnig endur-
heimtist þéttleikinn og ferskleikinn. Þetta er alveg ný upplifun fyrir
líkama og sál. Þá þykir tyrkneskt bað gott. Það er framkvæmt með
ilmkjarnaolíum og mildum E´Spa sápum og endar
með heilnuddi og máltíð. Slíkt bað hefur góð áhrif
á blóðrás, sogæðakerfið og bandvefi líkamans.
Vinnur á vöðvabólgum, gigt, stirðleika og er endur-
nærandi fyrir líkama og sál.“ E´Spa-saltnudd, þar
sem notað er perlulaga salt blandað ilmkjarnaolíum,
fjarlægir dauðar húðfrumur, hreinsar svitaholur,
vekur háræðakerfi húðarinnar og örvar sogæða-
kerfið. „Í heildrænni allsherjar meðferð með heitum
steinum er byrjað á að bursta allan líkamann og síðan er borið skrubb
krem og því nuddað létt á.
Snyrting og slakað á Í Laugum er sérstakur nuddbekkur, afar
mjúkur og þægilegur, sem sérstaklega er ætlaður fyrir barnshaf-
andi konur. Á bekknum eru holur fyrir maga og brjóst - sem gerir
konunum nuddið mjög þægilegt. Alls starfa tíu nuddarar og fjórir
snyrtifræðingar í Laugum og er þjónusta þeirra afar vinsæl. Æ
fleiri sækja í alla almenna snyrtingu, hand- og fótsnyrtingu - eða
andlitsböð og hreinsun. Vaxmeðferð verður sömuleiðis sífellt vin-
sælli.
„Hér er hægt að velja um
fimmtíu möguleika í nuddi
og snyrtingu,“ segir Hafdís
Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lauga - Spa.
Nudd og snyrting.
Frábær þjónusta í
Laugum Spa - World
Class í Laugardalnum.
Mikil aðsókn.
LAUGAR SPA
Fyrir hug, líkama og sál
KYNNING