Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 85
þennan miðil reynum við að fræða og greiða
fyrir samskiptum eins og mögulegt er.
Um þessar mundir erum við að hvetja
konurnar til að taka þátt í Nýsköpun 2005
og nú þegar hafa verið send gögn til tuttugu
kvenna varðandi þetta verkefni. Á vefsíðunni
okkar, www.fka.is, birtum við allar fréttir af
því sem er á döfinni og kynnum nýja félaga.
Þessi samskipti eru heilmikil hvatning til við-
skipta á milli FKA kvenna innbyrðis og við
vitum að þær fylgjast vel með síðunni.
Hvetjandi félagsstarf
Við höldum reglulega fundi einu sinni í mán-
uði og erum þá með dagskrá sem byggir upp
samstöðuna. Starfið miðast mikið við að
hvetja konurnar til dáða.
Við höldum ráðstefnur og tengjumst
alþjóðlegum samtökum kvenna í atvinnulíf-
inu og það skilar okkur mikilli þekkingu.
Þann 20. maí var t.d. haldið veglega upp
á Alþjóðadag kvenna, en þá bauð alþjóða-
nefnd FKA í samvinnu við breska sendiráðið
og QUIN-Ísland heim tveim glæsilegum
fulltrúum kvenna, Fr. Bola Olabisi, forseta
alþjóðlegra samtaka hugvitskvenna GWIIN
og fr. Avril Owton, varaforseta BAWE, sem
eru systursamtök FKA í Bretlandi. Það er
bæði skemmtilegt og hvatning fyrir okkur
að fá svona gesti hingað.
Styrkir og viðurkenningar
FKA leggur mikla áherslu á að auka sýni-
leika og tækifæri kvenna í viðskiptalífinu.
Á hverju ári er veitt sérstök viðurkenn-
ing FKA til konu í atvinnurekstri og þessi
viðurkenning hefur verið feikilega góð aug-
lýsing fyrir viðkomandi konu og stuðlað að
virðingu og verðskuldaðri athygli á framtaki
kvenna í viðskiptum almennt.
Í ár var það Katrín Pétursdóttir í Lýsi
sem hlaut þessa viðurkenningu og fjölmiðlar
beindu kastljósi sínu svo rækilega að henni
að það fór varla framhjá neinum.
Íslandsbanki hefur styrkt þessi verðlaun
undanfarin ár og nú hefur bankinn stofnað
styrktarsjóð með FKA þar sem markmiðið
er að efla enn frekar innra starf FKA og auka
þannig enn á árangur og arðsemi fyrirtækja
þeirra.
Styrkur Íslandsbanka nemur 2 milljónum
króna á ári þau tvö ár sem samningurinn er í
gildi og verður því fé úthlutað af sjóðsstjórn-
inni sem er skipuð tveim konum frá FKA,
Katrínu S. Óladóttur og Dagnýju Halldórs-
dóttur, og einum fulltrúa bankans, Sigrúnu
Kjartansdóttur.
Félagsstarfið er mjög fjörugt en mest
af þeirri vinnu sem fram fer innan FKA er
sjálfboðaliðsvinna. Við erum sjö í stjórn
félagsins, en auk mín eru þær Hildur Peter-
sen varaformaður, Soffía Johnson gjaldkeri,
María Maríusdóttir ritari og þrír meðstjórn-
endur; Svava Johansen, Katrín Pétursdóttir
og Aðalheiður Karlsdóttir.
Ýmsar nefndir eru starfandi í félaginu og
hver þeirra hefur sín verkefni. Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið styrkir félagið með því
að greiða fyrir starfsmann í hlutastarfi hjá
Impru svo við höfum aðgang að nokkurs
konar skrifstofu fyrir það nauðsynlegasta.
Við teljum að FKA sé í gríðarlegri sókn og
eigi eftir að reynast konum í atvinnurekstri
traust bakland til framtíðar,“ sagði Margrét
Kristmannsdóttir.
Ný stjórn FKA. Frá vinstri: Margrét Kristmannsdóttir, formaður, Soffía Johnson, gjaldkeri, María Maríusdóttir ritari, Svava Johansen með-
stjórnandi, Hildur Petersen, varaformaður, Aðalheiður Karlsdóttir og Katrín Pétursdóttir meðstjórnendur.