Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
KYNNING
Það hefur orðið geysilega mikil þróun í sauma- og útsaums-vélum á síðustu árum, enda tölvutæknin hafið þar innreið sína eins og víðast hvar annars staðar,“ segir Þórhildur Gunn-
arsdóttir, sölustjóri hjá Pfaff-Borgarljósum. „Vélarnar eru nú margar
tölvustýrðar, með fjölmörgum innbyggðum saumum og bútasaums-
sporum og í sumum er hægt að nota fleiri en einn þráð samtímis. Þær
allra fullkomnustu eru með hugbúnað sem gefur óteljandi möguleika
á bæði sporum, útsaumi og myndum, snertiskjá í lit
og jafnvel íslenskar valmyndir. Þessar vélar notar
fólk jafnt til nytja sem og tómstunda.“
Hún segir sókn og útrás hins íslenska fataiðnaðar,
bæði í fata- eða textílhönnun, afar ánægjulega. „Það
er mikil fjölgun í iðninni, bæði í hönnun og saumum.
Það er að mörgu leyti af það sem áður var að dæt-
urnar lærðu iðnina af mæðrum sínum eða mæðrum
þeirra en konur hafa í gegnum tíðina verið ráðandi
í faginu. Karlmönnunum fjölgar þó hægt en sígandi
og er það gleðiefni. Framhalds- og iðnskólarnir hafa
hins vegar að miklu leyti tekið við kennsluhlutverki eldri kynslóða
og staðið sig þar mjög vel. Á meðal ungs fólks er áhuginn mikill fyrir
námi í textíl og hönnun enda sameinar starf í þeim geira margt það
sem eftirsóknarvert þykir eins og að geta verið sjálfs síns herra, haft
sveigjanlegan vinnutíma og síðast en ekki síst verið í skapandi vinnu.
Nýju sauma- og útsaumsvélarnar gera saumaskapinn auðveldari og
flestir ættu að geta eignast slíkan vélbúnað því verðið er hagstætt og
sjaldnast hindrun fyrir þá sem vilja hefja sinn eigin atvinnurekstur.“
Nýja Brother PR-600 útsaumsvélin frá Brother hentar að sögn
Þórhildar einyrkjum og þeim sem vilja stunda atvinnurekstur á heim-
ili sínu einstaklega vel. „Hún er kröftug og býr yfir
sömu tækni og iðnaðarútsaumsvélar en er mjög auð-
veld í notkun. Brother PR-600 er með sex nálum og
sjálfvirkum litaskipti en vélin er tölvustýrð og allar
aðgerðir eru framkvæmdar með fingrum á snerti-
skjá. Henni fylgja fjölmörg mynstur og bókstafir
en einnig er hægt að kaupa aukalega sérstakan
hugbúnað til þess að búa til ný mynstur. Vélin er
svo fyrirferðarlítil að hún kemst fyrir hvar sem er og
hægt er að fara með hana hvert sem er,“ segir Þór-
hildur sem sjálf er þaulreynd saumakona og segir
að enginn þurfi að hræðast tölvutæknina í saumaskapnum. „Hann
verður aðeins skemmtilegri fyrir vikið og tæknin gefur óþrjótandi
möguleika, líka fyrir þá sem sauma aðeins sér til gamans.“
PFAFF-BORGARLJÓS
Snilldartækni í saumaskap
Nýja Brother PR-
600 útsaumsvélin
frá Brother hentar
einyrkjum eða þeim
sem vilja hefja atvinnu-
rekstur á heimili sínu
einstaklega vel.
Þórhildur Gunnarsdóttir,
sölustjóri hjá
Pfaff-Borgarljósum