Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 153
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 153
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
FÓLK
Halldóra Hreggviðsdóttir er fram-kvæmdastjóri Alta, sem er ráðgjafar- og þróunarfyrirtæki. Alta er fyrirtæki sem
sérhæfir sig í skipulagi og stjórnun breytinga,
„því allar framfarir snúast jú um breytingar“.
Verkefni fyrirtækisins hafa verið fjölbreytt og
skemmtileg en um leið að mörgu leyti óhefð-
bundin. Þau hafa iðulega verið á sviði skipu-
lags- og umhverfismála og snúast kannski í
raun um stefnumörkun og leiðir til að koma
breytingum í kring. „Við leggjum áherslu á
að virkja þá sem best til þekkja með í okkar
vinnu, hvort sem á við íbúa, starfsmenn fyrir-
tækja eða sérfræðinga og erum leiðandi í
samráði við hópa. Það verður einstök gerjun
þegar einstaklingar með ólíkan bakgrunn
koma saman, nýjar hugmyndir fæðast og
sameiginlegur skilningur verður um verk-
efnið sem þarf að leysa.“
Meðal þess sem Alta hefur unnið nýlega
að og vakið hefur verðskuldaða athygli er
verkefnið „Akureyri í öndvegi“, sem er um
þróun miðbæjar Akureyrar. Að þessu verk-
efni standa mörg stærstu fyrirtæki landsins.
Sú stefna var tekin í upphafi, í samráði
við Arkitektafélagið, að miðla gögnum um
keppnina á vefnum þannig að sem minnstar
tæknilegar hindranir væru í vegi keppenda.
Fallið var frá kröfu um skráningu og greiðslu
fyrir keppnisgögn, eins og tíðkast, enda gert
ráð fyrir því að menn prentuðu keppnis-
gögn sjálfir. Alta annaðist jafnframt kynn-
ingu á keppninni út á við og sá til þess að
hennar væri getið á öllum helstu vefjum,
sem þeir arkitektar og skipulagsfræðingar
heimsækja, sem vilja vita af samkeppnum.
151 tillaga barst frá 40 löndum og voru úrslit
tilkynnt 7. maí.
Halldóra hefur meistaragráðu frá Stan-
ford háskóla í hagverkfræði, þar sem hún
sérhæfði sig í ákvörð-
unarfræði, skipulagi
og stjórnun og í jarð-
fræði, með sérhæfingu
á sviði jarðefnafræði
jarðhitakerfa. Halldóra
hefur mikla þverfag-
lega reynslu af skipu-
lagningu og stjórnun
verkefna á sviði rek-
strar-, skipulags- og
umhverfismála:
„Eftir að ég stofn-
aði Alta var ég í fyrstu
eini starfsmaðurinn.
Ég hafði starfað mjög víða, hjá Skipulags-
stofnun og einkafyrirtækjum í margs konar
starfsemi. Ég hafði meðal annars unnið
við skipulags- og umhverfismál, breytinga-
stjórnun og samruna hjá fyrirtækjum. Eftir
tíu ár hjá öðrum ákvað ég svo að stofna
ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki sem byði upp
á þjónustu sem væri öðruvísi en önnur fyrir-
tæki væru að bjóða og nýta þá reynslu sem
ég hafði orðið mér úti um, fyrirtæki sem
væri að búa til umgjörð um árangur og virkja
um leið þá sem best til þekkja. Hef ég haft
þetta að leiðarljósi og reksturinn gengið vel
að nú eru starfsmenn orðnir tíu og hafa þeir
óvenju fjölbreyttan bakgrunn.“ Má geta þess
að einn þeirra starfsmanna sem Halldóra
réði til sín þegar vöxtur kom í starfsemina
var eiginmaður hennar, Árni Geirsson véla-
verkfræðingur.
Halldóra hefur
mörg áhugamál:
„Ég hef mest gaman
af því að vera með
fjölskyldu og vinum
og elda góðan mat.
Gönguferðir um
náttúruna, skógrækt,
skíði og lestur góðra
bóka freista mín
einnig. Nýjasta uppá-
tækið er að fljúga
svifvæng. Ég lærði
eitt sinn til einkaflug-
manns. Flugið hefur
greinilega blundað í mér og nú fæ ég útrás
fyrir það með svifvængnum, sem er virkilega
skemmtileg íþrótt. Ég fór á námskeið fyrir
ári síðan og heillaðist. Þú gengur upp á fjall
með vænginn í poka á bakinu, opnar hann í
fjallshlíðinni og lætur þig síðan svífa niður,
sem er hreint einstök tilfinning.“
Halldóra og fjölskylda hennar ætlar að
nýta sér beint flug til San Francisco í sumar:
Við ætlum að fara til Stanford í Kaliforníu
þar sem við Árni vorum í framhaldsnámi.
Við höfum ekki farið þangað síðan við lukum
námi, þannig að þetta verður nokkurs konar
nostalgíuferð fyrir okkur. Börnin okkar
koma með okkur og ætlum við síðan áfram
til Mexíkó, en þar var ég eitt sinn skiptinemi
og þar ætlar dóttir okkar að verða eftir og
vinna í sumar á „vöfflukaffihúsi“ hjá fjöl-
skyldunni sem ég var hjá.“
Halldóra Hreggviðsdóttir: Var í fyrstu eini starfsmaður Alta. Nú eru þeir tíu.
framkvæmdastjóri Alta
Halldóra
Hreggviðsdóttir
Nafn: Halldóra Hreggviðsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Foreldrar: Herborg H. Halldórsdóttir
og Hreggviður Þorgeirsson.
Maki: Árni Geirsson, PhD í vélaverkfræði.
Börn: Herborg og Hlynur.
Nám: Stúdent frá MR, BS í jarðfræði frá
HÍ, MS í jarðefnafræði og MS í hagverk-
fræði frá Stanford háskóla í Kaliforníu.
Áhugamál: Að vera með fjölskyldu og
vinum, eldamennska, gönguferðir um
náttúruna, skógrækt, skíði, bókalestur
og svifvængjaflug.
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON