Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 108
KYNNING
Þ að jafnast ekkert á við að svífa inn í svefninn og vakna úthvíldur að morgni dags. Það vissi Ragnar
Björnsson húsgagnabólstrari en hann
stofnaði samnefnt fyrirtæki sem nú leggur
áherslu á að framleiða gæðadýnur fyrir
Íslendinga. „Húsgagnabólstrun Ragnars
Björnssonar ehf. var stofnuð árið 1943
og grunnurinn er því gamall og traustur,“
segir Birna Ragnarsdóttir framkvæmdar-
stjóri, en hún tók við stjórnartaumunum
af föður sínum sem lést árið 2004. „Ég
hafði besta lærimeistarann, bæði í iðninni sjálfri og í
rekstri fyrirtækisins. Ég fylgdist með verkum pabba
frá því að ég var lítil stelpa, fékk fljótlega áhuga á
greininni og aðstoðaði hann eftir þörfum og þroska.
Ég tók verslunarskólapróf og fór síðan í iðnskólann
þar sem ég lærði húsgagnabólstrun og var í verk-
námi hjá pabba. Við áttum afar farsælt samstarf
þar til hann féll frá í fyrra en síðustu árin sá ég að mestu leyti um
daglegan rekstur fyrirtækisins.“
Þarfir viðskiptavinarins eru það sem reksturinn snýst um og
markmiðið er að uppfylla þær. Engir tveir eru eins og þess vegna
er fjölbreytnin í fyrirrúmi í rúmunum hjá Ragnari Björnssyni ehf.
„Við sérsmíðum bæði rúm og dýnur eftir óskum. Lengd, breidd og
hæð rúmanna getur því farið eftir stærð og gerð hvers og eins. Það
sama á við um dýnurnar sem hægt er að fá eftir máli en þar má velja
á milli fjögurra tegunda af springdýnum: Venjulegra springdýna,
sérhannaðra sjúkradýna með varmaklæðningu, super deluxe eða
grand deluxe springdýna með tvöföldum, mjúkum mottum, allt eftir
því sem hentar hverjum og einum en það eru fjórir stífleikar í boði.
Ýmsir möguleikar eru einnig fyrir hendi við val á göflum. Hægt er að
fá trégafla, bólstraða gafla með áklæði
eða leðri og járngafla og eins ráða hæð,
lögun og útliti þeirra en sýnishorn má
skoða í nýjum og glæsilegum sýningarsal
okkar að Dalshrauni 8. Þar eru einnig til
sölu rúmteppi, púðar, pífur, sængurvera-
sett, náttborð og fleira.“
Dýnurnar frá Ragnari Björnssyni hafa
verið og eru í fjöldamörgum rúmum
ánægðra og vel úthvíldra Íslendinga auk
þess sem fjölmörg hótel og gistiheim-
ili hafa keypt dýnur af fyrirtækinu. „Við
leggjum áherslu á að vera í fararbroddi við þróun og
framleiðslu springdýna en fyrirtækið er í heimssam-
tökum ISPA, sem eru gæðasamtök fyrirtækja sem
sérhæfa sig í framleiðslu og hönnun á springdýnum.
Síðast en ekki síst viljum við veita viðskiptavinum
okkar góða og persónulega þjónustu, helst þannig
að þeir séu svífandi glaðir eftir að hafa átt samskipti
við okkur,“ segir Birna brosandi.
RAGNAR BJÖRNSSON EHF.
Rótgróið fyrirtæki í rúmum og dýnum
Birna Ragnars-
dóttir stýrir rót-
grónu fjölskyldu-
fyrirtæki í vexti.
„Ég hafði besta læri-
meistarann, bæði í iðn-
inni sjálfri og í rekstri
fyrirtækisins.“
108 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5