Frjáls verslun - 01.05.2005, Qupperneq 16
KYNNING16 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Íbúðalán.is er þægileg netsíða þar sem
unnt er vinna rafrænt greiðslumat og sækja
um allt að 26 milljónir króna íbúðalán á raf-
rænan, einfaldan hátt. Íbúðalán.is var sett
í loftið í desembermánuði sem samstarfs-
verkefni Íbúðalánasjóðs, sparisjóðanna og
Félags fasteignasala. Þetta er góður kostur
fyrir íbúðakaupendur, sem geta nú gengið
frá lánsumsókn sinni heima í stofu eða
á fasteignasölunni kjósi menn það. Vefur-
inn hefur nú verið uppfærður þannig að
greiðslumatið og rafræna umsóknarferlið
er enn betra en áður. Nýjungarnar voru
kynntar 16. júní í kynningarhófi á Grand hóteli þar sem voru fast-
eignasalar og aðrir gestir. Hallur Magnússon, sviðsstjóri þróunar-
sviðs hjá Íbúðalánasjóði, er einn þeirra sem hefur haft veg og vanda
að tilurð netsíðunnar:
„Eftir að við fórum af stað með Íbúðalán.is hefur netsíðan verið í
stöðugri þróun og endurnýjun. Hún er unnin í samstarfi við sparsjóð-
ina og Félag fasteignasala og takmarkið er að tryggja greiðan aðgang
að öllu sem tengist íbúðalánum. Óhætt er að segja að ef sótt er um
íbúðalán á netsíðunni er það einfaldara og þægilegra en nokkurn
tíma hefur þekkst.“
Hallur segir mikla vinnu liggja á bak við Íbúðalán.is. „Við hjá
Íbúðalánasjóði heimsóttum tugi fasteignasala og ræddum sam-
skiptin, hvort eitthvað mætti betur fara og fengum við dýrmætar upp-
lýsingar í þessum ferðum okkar. Við fórum síðan að vinna úr þessum
upplýsingum í samvinnu við sparisjóðina og niðurstaðan er til dæmis
að greiðslumatið og lánsumsóknirnar eru enn einfaldari og um leið
er auðveldara að fylla þær út. Segja má að þegar á heildina er litið þá
sé Íbúðalán.is með sínum reiknivélum einfalt vinnutæki fyrir þá sem
eru að taka lán og einnig þá sem eru að huga að breytingum.“
Pappírsflóðið hverfur
Þeir sem nota Íbúðalán.is geta á fljótan og skilmerkilegan hátt fengið
lán á skömmum tíma. Þegar búið er að fylla út greiðslumatið fær
umsækjandinn strax staðfestingu um láns-
hæfi og í framhaldi gengur ferlið mjög fljótt
fyrir sig. Ekkert pappírsflóð fylgir umsókn
á Íbúðalán.is enda geta fasteignasalar nú
sent kauptilboð til sjóðsins á rafrænan hátt.
„Við lofum að ef öll gögn eru í lagi verður
afgreiðslutíminn aldrei meiri en fjórir dagar,
þannig að við teljum okkur vera komna með
mjög góða þjónustu fyrir íbúðakaupendur,
þjónustu sem er einföld, þægileg, örugg og
án pappírsflóðs sem einkenndi lánin áður
fyrr.
Sparisjóðirnir koma inn í lántökuna þegar
hámarki okkar er náð sem er 15,9 milljónir króna og getur þá lánið
numið allt að 26 milljónum króna. Þar sem við erum í samvinnu við
alla sparisjóðina þá getur umsækjandinn ráðið því hvar hann vill að
lánið sé afgreitt. Hann getur fengið lánið hjá okkur eða í sparisjóðum
úti um allt land.“
Engin aukagjöld
Hallur getur þess að lánin hjá Íbúðalánasjóði séu mjög sveigjanleg á
lánstímanum og komi upp einhver vandmál hjá lántakanda þá bjóði
sjóðurinn upp á öflug úrræði vegna greiðsluerfiðleika, eins og fryst-
ingu lána í allt að 3 ár.
„Við erum ekki hætt að endurbæta rafvæðingu lána á vegum
Íbúðalánasjóðs þó að Íbúðalán.is sé í dag mjög fullkomin netsíða og
góður kostur þeirra sem ætla að sækja um íbúðalán,“ segir Hallur:
„Við munum halda áfram að einfalda hlutina og þjóna viðskipta-
vinum okkar á öruggan og farsælan hátt eins og við höfum gert
hingað til.“
Einfalt, öruggt og þægilegt
Texti: Hilmar Karlsson
Myndir: Geir Ólafsson
Hallur Magnússon: „Við teljum
okkur vera komna með mjög
góða þjónustu fyrir íbúða-
kaupendur, þjónustu sem er
einföld, þægileg, örugg og án
pappírsflóðs sem einkenndi
lánin áður fyrr.“
Íbúðalánasjóður
Borgartúni 21.
Sími: 5696900. Fax: 5696800
Netsíður: www.ils.is og www.ibudalan.is
ÓHÆTT ER AÐ SEGJA AÐ EF
SÓTT ER UM ÍBÚÐALÁN Á NET-
SÍÐUNNI ER ÞAÐ EINFALDARA OG
ÞÆGILEGRA EN NOKKURN TÍMA
HEFUR ÞEKKST.