Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
N
ýleg athugun viðskiptaráðu-
neytisins leiðir í ljós, eftir
að leitað var svara hjá 81
fyrirtæki, að hlutur kvenna
í stjórnum þeirra er nú 11,28% en var
10,08% stjórnarmanna fyrir ári. Þetta
er óveruleg fjölgun, og hvatningar-
átak viðskiptaráðherra virðist ekki
hafa borið þann árangur sem að var
stefnt. Einn viðmælenda blaðsins í
þessari samantekt telur slík átaksverk-
efni raunar ekki líkleg til árangurs.
Málið snúist fyrst og fremst „...um
að breyta hugarfari og það gerist á
löngum tíma - en þar vinnur tíminn þó
með konunum.“
KARLAR SVARA
H V E R N I G A U K A M Á H L U T K V E N N A
TEXTI: SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Viðhorfsbreyting, hvatning, nýtt gildismat, menntun og aukin áhersla á fjölskyldumál. Á þessa
lund svöruðu sjö áhrifamenn í atvinnulífi og stjórnmálum þegar Frjáls verslun leitaði svara þeirra
við spurningunni: Hvað þarf að gerast til að konum fjölgi í stjórnunarstörfum í viðskiptalífinu?
HVER ER GALDURINN?
ÁRNI SIGFÚSSON
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ
Kynjakvóti er óráðlegur
„Ég er sannfærður um að konum mun sjálfkrafa
fjölga í stjórnunarstörfum á næstu árum. Nútíma-
stjórnun viðurkennir betur hæfileika og reynslu-
heim margra kvenna til stjórnunarstarfa. Aukinn
hlutur þeirra í menntun, sem oft leiðir til stjórn-
unarstarfa, er einnig að aukast. Ég tel til dæmis
afar óráðlegt að setja kynjakvóta á stjórnarsetur.
Til lengri tíma litið mun það
tefja fyrir því að konur sitji
í stjórnum vegna hæfileika
sinna, sem reynslan segir
mér að séu síður en svo
minni en karla.“
„Er sannfærður
um að konum
mun sjálfkrafa
fjölga í stjórnun-
arstörfum.“