Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
A
uglýsing er viðskiptaleg tjáning skoðunar,
sjónarmiðs eða upplýsinga og sem slík nýtur
hún verndar stjórnarskrár, en frelsi stjórnar-
skrár má almennt ekki skerða. Þannig lýtur
auglýsingin þeim takmörkunum á viðskipta-
legu tjáningarfrelsi sem settar hafa verið á grund-
velli stjórnarskrárinnar. Auglýsing er einnig viðskipta-
gerningur; keypt tilkynning sem skal skilmerkilega
aðgreind, bæði í tíma og rúmi, frá því ritstjórnarefni
sem umlykur hana.
Hæstiréttur hefur látið þau orð falla að auglýsing
sé tjáningarform, sem hafi mikla þýðingu í nútíma-
þjóðfélagi við upplýsingamiðlun til almennings því hún
endurspeglar hvernig við lítum á hluti og hvernig við
sjáum okkur sjálf, og að rétt sé að vernda auglýsingar
fyrir of mikilli íhlutun stjórnvalda vegna réttar almenn-
ings til upplýsinga og vegna þess að fjölmiðlar, sem
þrífast á auglýsingum, gegna lykilhlutverki í lýðræðis-
þjóðfélagi. Jafnframt þarf að gæta þess að þessar
gagnlegu upplýsingar geymi efni sem er sanngjarnt og
sannleikanum samkvæmt - að góðir viðskiptahættir
setji afli fjármagnsins valdmörk.
Tjáningarfrelsið og verndarmarkmiðin
Grunnreglan um tjáningarfrelsi kemur fram í upphafi 2.
mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar og birtingarmynd þess
er hið virka lýðræði þar sem óheft opinber umræða,
ásamt frjálsu upplýsingaflæði, er ein af forsendunum. Í
ákvæðinu segir að hver maður eigi rétt á að láta í ljós
hugsanir sínar og að ritskoðun eða aðrar tálmanir á
tjáningarfrelsi megi aldrei í lög leiða. Þrátt fyrir þetta
skýlausa bann við tálmum heimilar stjórnarskráin tak-
mörkun á tjáningarfrelsinu að uppfylltum þremur skil-
yrðum: Takmörkunin verður að vera lögbundin, þarf
Greinarhöfundur, Elfur Logadóttir. BS-ritgerð hennar um tjáningarfrelsi
og auglýsingar hefur vakið athygli.
HVAÐ MÁ AUGLÝSA?
A U G L Ý S I N G A R
TEXTI: ELFUR LOGADÓTTIR
Elfur Logadóttir skrifaði nýlega BS-ritgerð við Háskólann
í Reykjavík um tjáningarfrelsi og auglýsingar.
Ritgerðin fékk framúrskarandi einkunn.