Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 70

Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5 aldurs, vinnuframlags, mannaforráða og starfsaldurs kemur í ljós að kynbundinn launamunur hjá viðskipta- og hagfræðingum er nú 7,6% en var 6,8% árið 2003. Þessi niðurstaða um launamismuninn er ekki í samræmi við niðurstöður könnun- arinnar sem Runólfur Ágústsson vitnaði í og gagnrýnd hefur verið. Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði til að mynda að könnunin væri fyrst og fremst vísbending um hvernig tilteknu fólki vegnar á fyrstu árum sínum í atvinnulífinu. Hvað sem háum eða lágum tölum líður um launamismun karla og kvenna er það staðreynd að um launamismun er að ræða. Er hægt að sporna við þróuninni og lagfæra mismuninn eða eru eðlilegar skýringar á launamismuninum og er ekki ólíklegt að það sé meðvituð stefna fyrirtækja að borga konum lægri laun en körlum? Nú eru að verða fjörutíu ár frá því að tekið var á launamuni kynja í kjara-samningum og með lögum. Fyrir þann tíma viðgengust mismunandi launataxtar og var munurinn um 40% í kjarasamningum verslunarmanna. Rökin sem notuð voru þá fyrir þessum mismun voru að greitt væri fyrir afköst í líkamlegri vinnu. Vandinn í jöfnun launamunar kynja felst annars vegar í hvað laun geta hækkað mikið og hins vegar hvaða þættir ráða launum. Ef við skoðum launahækkanir verslunar- manna þá höfum við hækkað taxtana um 390.000% frá 1955, sem hefur skilað tæp- lega 93% kaupmáttaraukningu á tímabilinu þegar verðbólga hefur verið tekin frá, eða um 1,32% á ári að meðaltali. Ef við gefum okkur að þjóðarsátt næðist um að konur nytu 50% meiri árlegrar kaupmáttaraukn- ingar en karlar, þá tæki um 70 ár að jafna kynbundinn launamun frá því að hann var um 40%. Í dag mælist munurinn um 15% og hefur því minnkað um 25% á fjörutíu árum, sem svarar til þess að konur hafi fengið um 50% meiri kaupmáttaraukningu frá 1966. Stór hluti af þessari kaupmáttaraukningu kvenna hefur komið á síðustu árum og því virðast konur nálgast karla með auknum hraða. Við í VR höfum sett jöfnun launamunar kynja í forgang og teljum nauðsynlegt að líta raunsætt á verkefnið og vinna á sem flestum þáttum málsins í einu. Hækka lág- markslaunataxta, taka upp ákvæði um mark- aðslaun í kjarasamningum, sem hafa skilað VR-konum árangri umfram karla, og beita áróðri. Þó margt jákvætt hefur gerst á undan- förnum árum eins og upptaka nýs fæðingaror- lofskerfis, er ljóst að enn tekur nokkurn tíma að ná fullum jöfnuði en vonandi tekur það skemmri tíma en 70 ár, þ.a.s. 30 ár héðan í frá. Nokkrar umræður hafa verið í þjóðfé- laginu um að launamunur aukist aftur á ný. Ekki hafa sést neinar nákvæmar mælingar á því en þó gæti það verið sökum uppsveifl- unnar, en það er þekkt að yfirvinna eykst á þenslutímum og að karlar vinna mun meiri yfirvinnu en konur. Ef svo er má búast við að það jafnist út þegar meira jafnvægi kemst á efnahagslífið.“ Me›altal vinnustunda karla á vinnusta› á viku er 46,4 stundir og stendur nánast í sta› frá sí›ustu mælingu. Me›altal vinnustunda kvenna eykst á hinn bóginn úr 41,7 stundum á viku ári› 2003 í 43,5 stundir í ár. L A U N A M U N U R K Y N J A N N A Gunnar Páll Pálsson: „Við í VR höfum sett jöfnun launamunar kynja í forgang.“ GUNNAR PÁLL PÁLSSON, FORMAÐUR VR: Konur nálgast karla með auknum hraða 60 40 0 46,4 47,4 47,2 44,8 45,3 47,9 49,5 48,5 46,5 46,4 42,7 43,4 44,4 41,7 43,5 1997 1999 2001 2003 2005 Alls Karlar Konur Tí m af jö ld i á v ik u Fjöldi vinnustunda viðskipta- og hagfræðinga Úr kjarakönnun Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, FVH
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.