Frjáls verslun - 01.05.2005, Síða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Þ
egar Norðmenn óskuðu eftir samstarfi við
Íslendinga við gerð Evrópuskýrslu um stöðu
kvenna í atvinnurekstri var Sigríður fengin
til að starfa í íslensku nefndinni fyrir hönd
Byggðastofnunar. Auk Sigríðar sátu í nefndinni Bjarn-
heiður Jóhannesdóttir og Helga Björg Ragnarsdóttir,
sem eru atvinnu- og jafnréttisráðgjafar Byggðastofn-
unar, Erna Bjarnadóttir frá Bændasamtökunum,
Kristín Karlsdóttir frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
inu og Stefanía Óskarsdóttir, sem er sjálfstætt starf-
andi sérfræðingur og vann meðal annars skýrsluna
Konur í vísindum.
Góð ráðgjöf nauðsynleg „Norðmenn áttu frumkvæðið
að því að koma þessari rannsókn af stað og sóttu
um styrk til jafnréttisáætlunar Evrópusambandsins.
Þeir leituðu síðan eftir þátttöku Íslands, Lettlands,
Svíþjóðar og Grikklands, sem
öll tóku þátt í rannsókninni,“
segir Sigríður Elín, en tilgang-
urinn með þessari rannsókn
var að finna út hvaða hindranir
verða á vegi kvenna í atvinnu-
rekstri og styðja konur í atvinn-
urekstri, með það fyrir augum
að reyna að fjölga konum sem
sjá atvinnutækifæri í eigin við-
skiptum.
„Skýrslan var byggð á fyr-
irliggjandi gögnum frá hverju
þessara landa og viðtölum við
konur í atvinnurekstri frá þeim
öllum. Þá voru gefnar út fimm
skýrslur, ein í hverju landi fyrir
sig, og síðan ein samanburð-
arskýrsla.“ Sigríður segir góða
ráðgjöf gríðarlega mikilvæga
og að flestir sem tóku þátt í
rannsókninni hafi lagt mesta
áherslu á gott aðgengi að ráðgjöf um stofnun og
rekstur fyrirtækja, frekar en beinar styrkveitingar frá
hinu opinbera.
„Impra veitir ráðgjöf um stofnun og rekstur lítilla
fyrirtækja, en einnig aðstoðar hún fólk við að þróa
viðskiptahugmyndir sínar,“ segir Sigríður og bætir við:
„Síðan geta konur í atvinnurekstri leitað til atvinnu-
og jafnréttisráðgjafa Byggðastofnunar en einnig eru
staddir ráðgjafar um allt land sem aðstoða jafnt konur
sem karla í atvinnurekstri. Það sem vantar þó helst
upp á er að þessir ráðgjafar verði enn sýnilegri.“
Það sama segir Sigríður um konur í stjórnunar-
stöðum og atvinnurekstri úti í þjófélaginu. Þær þurfi
að vera mun sýnilegri. „Það væri mikil hvatning fyrir
aðrar konur og ungar stúlkur sem hafi áhuga á því að
stofna sín eigin fyrirtæki í framtíðinni að hafa fyrir-
myndir í þeim konum sem fyrir eru í þessari stöðu.
Þegar maður flettir viðskiptatengdum blöðum eru
nánast ekkert nema karlar á öllum síðum. Það er
kannski ekkert undarlegt svo sem, þar sem konur eru
svo fáar, en það er enn meiri ástæða til að gera þessar
konur sýnilegri.“
Kvenráðgjafarnir jákvæðari Sigríður Elín segir braut-
argengisnámskeið Impru undanfarin ár, verkefnið
Auður í krafti kvenna og Máttur kvenna, hafa gefist
mjög vel. „Þátttakan hefur verið mjög mikil í þessum
verkefnum, enda sýnir reynslan að þegar auglýst
eru námskeið sérstaklega fyrir konur um stofnun
og rekstur fyrirtækja, þá mæta fjölmargar konur til
þátttöku. Hins vegar virðast námskeið, sem haldin
eru fyrir alla, ekki ná eins vel til kvenna og karla. Svo
virðist sem konur þurfi að vita að námskeiðið sé ætlað
þeim sérstaklega og að konur séu þar í meirihluta.“
Hjá Byggðastofnun hafa verið tveir atvinnu- og
jafnréttisráðgjafar starfandi undanfarin þrjú ár, starf
þeirra felst í því að aðstoða konur sem hafa viðskipta-
hugmyndir og þær hafa meira en nóg að gera. „Það er
fullt til af konum sem eru með viðskiptahugmyndir en
Rætt við Sigríði Elínu Þórðardóttur, ráðgjafa hjá Byggðastofnun,
en hún kom að gerð athyglisverðrar Evrópuskýrslu um stöðu kvenna
í atvinnurekstri. Ísland, Noregur, Svíþjóð, Grikkland og Lettland tóku
þátt í rannsókninni. Hér koma helstu niðurstöður.
KONUR ÞURFA HVATNINGU
Sigríður Elín Þórðardóttir er ráðgjafi á þróunar-
sviði Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Hún
lauk mastersnámi í félagsfræði frá Háskóla
Íslands á síðasta ári og skrifaði þar lokaritgerð
um konur í rekstri fyrirtækja á Íslandi.
A T H Y G L I S V E R Ð E V R Ó P U S K Ý R S L A