Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Þetta er spennandi starf, gríðarlega fjölbreytt og í fyrirtækinu ríkir góður og skemmtilegur liðsandi,“ segir Magnea Þ. Hjálm-arsdóttir og brosir, en hún var nýlega ráðin framkvæmda-
stjóri Icelandair Hotels. „Icelandair Hotels er stærsta fyrirtækið í
hótelrekstri á Íslandi. Það varð til árið 1998 þegar hótelin sem til-
heyrðu Flugleiðum og Ferðaskrifstofu Íslands voru
sameinuð í eitt sjálfstætt fyrirtæki. Það rekur tvær
hótelkeðjur, Icelandair Hotels, sem eru átta talsins
og Hótel Eddu sem eru sextán. Icelandair Hotels eru
heilsárs hótel þar sem veitt er fyrsta flokks þjónusta,
en þau stærstu, Nordica hótel, með 252 herbergjum,
og Hótel Loftleiðir, með 220 herbergjum, eru bæði
fjögurra stjörnu hótel. Önnur Icelandair Hotel eru
á landsbyggðinni og eru með allt frá 27 og upp í 60
herbergi.
Edduhótelin er að finna hringinn í kringum landið, flest í heima-
vistarskólum en sum í byggingum sem eingöngu eru notuð til hótel-
reksturs. Þau eru aðeins opin yfir sumartímann og þar leggjum við
áherslu á lipra þjónustu og hagstætt verð.“
Magnea segir að mikil uppbygging hafi átt sér stað í hótelgeir-
anum hér á landi síðastliðinn fjögur ár. „Undanfarin tvö ár hefur
fjöldi erlendra ferðamanna til landsins verið að aukast en á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs fækkaði þeim um 5,6 %. Það eru því tölu-
verð umskipti og í ljósi aukins framboðs á gistirými má vænta þess
að samkeppni verði um hvern gest. Flóra ferðamannanna er mjög
fjölbreytt en Icelandair- og Edduhótelin höfða til ólíkra markhópa
auk þess sem staðsetning hótelanna vítt og breitt um landið er
tvímælalaust kostur. Þar starfar einnig úrvalsfólk
sem er albúið að gera sitt ítrasta og takast á við
samkeppnina.“
Magnea hefur ferðast, numið og unnið víða,
bæði innanlands sem utan. „Ég lauk námi í hótel-
stjórnun frá IHTTI, Neuchatel í Sviss árið 1991 og
MBA-námi frá University of Surrey á Englandi árið
2003. Hótelferilinn hóf ég í Sviss og fór þaðan til
Japan en kom síðan heim og starfaði á Holiday
Inn Reykjavík, var aðstoðarhótelstjóri Hótel Esju
og Loftleiða, forstöðumaður landsbyggðarhótela Icelandair Hotels
og forstöðumaður Icelandair Hotels. Þá var ég framkvæmdastjóri
ráðstefnunnar „Konur og lýðræði við árþúsundamót“ sem haldin
var á vegum ríkisstjórnarinnar. Ég er svo aftur komin heim eftir að
hafa verið í námi og síðan starfað um skeið við Háskólann í Surrey
að skipulagningu alþjóðlegra ráðstefna sem og ráðgjafi á sviði mark-
aðsmála og gæðastjórnunar.“
ICELANDAIR HOTELS
Fimmtánhundruð
hótelherbergi um allt land
Fyrirtækið rekur tvær
hótelkeðjur, Icelandair
Hotels, sem eru átta
talsins, og Eddu-hótelin
sem eru sextán.
Magnea Þ. Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Icelandair Hotels,
er þaulreynd í
hótelgeiranum.
KYNNING