Frjáls verslun - 01.05.2005, Blaðsíða 124
124 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
í þessum mánuði eru fimm ár frá því ráðstefnuþjónustan Congress Reykjavík var stofnuð. Í dag eru eigendurnir þær Lára B. Pét-ursdóttir og Birna B. Berndsen, en um þessar mundir eru fimm
konur starfandi hjá fyrirtækinu. Congress Reykjavík hefur ekki skort
verkefni, enda ófáar ráðstefnur og fundir haldnir á Íslandi. Á þremur
vikum, frá maílokum fram um miðjan júní, sáu þær um 14 stóra og
smáa fundi og ráðstefnur með rúmlega 1700 þátttakendum.
Lára er framkvæmdastjóri Congress Reykjavík. „Við
Birna unnum báðar áður hjá ráðstefnudeild Ferðaskrif-
stofu Íslands og höfðum langa reynslu á þessu sviði en
okkur langaði að reka fyrirtæki á eigin forsendum, fyrir-
tæki sem ekki væri deild í öðru stærra fyrirtæki. Við
höfum einbeitt okkur að því að skipuleggja ráðstefnur,
þing og fundi fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök
frá a til ö, auk þess sem Congress Reykjavík sér um
gistingu og skoðunarferðir fyrir þátttakendur, enda er
fyrirtækið með ferðaskipuleggjendaleyfi.“
Þær Lára og Birna höfðu ýmsar hugmyndir um hvernig veita
mætti betri og persónulegri þjónustu í skipulagningu funda og ráð-
stefna og að auki fyrir lægra verð. Ýmislegt hefur tilhneigingu til að
verða þungt í vöfum og taka lengri tíma en þörf krefur hjá stærri
fyrirtækjum og samsteypum og þær töldu sig geta gert betur um leið
og þjónustan yrði persónulegri. „Í þessu felst styrkur okkar,“ segir
Lára. „Skipulag og framkvæmd árangursríkrar ráðstefnu krefst sam-
hæfingar og umsjónar með stórum verkþáttum en ekki má gleyma
smáatriðum sem kalla á réttar lausnir. Við finnum þessar lausnir svo
viðburðirnir verði bæði velheppnaðir og ógleymanlegir.“
Þjónusta fagfólks borgar sig. Íslensk fyrirtæki eru smátt og smátt
farin að gera sér ljóst að það borgar sig að fá fagfólk til að skipuleggja
hvers kyns uppákomur, allt frá aðalfundum til stórra ráð-
stefna. Congress Reykjavík hefur á að skipa reyndum
starfsmönnum sem vita hvernig best er að bera sig að
við skipulagninguna svo ekkert fari úrskeiðis og kostn-
aður verði í lágmarki þótt hvergi sé slegið af kröfum.
„Við leggjum metnað okkar í að þeir sem standa
fyrir fundum eða ráðstefnum geti sjálfir einbeitt sér
að faglegu dagskránni og verið í hlutverki gestgjafans
þegar ráðstefnan hefst.
Draumurinn er að fyrirtækið haldi áfram að vaxa og dafna eins
og það hefur gert fram að þessu. Starfsandinn er góður og það er
ótrúlega skemmtilegt að kynnast þeim fjölda fólks sem við eigum
samskipti við. Þetta er starf sem krefst þjónustulundar og mikillar
mannþekkingar þar sem góð mannleg samskipti skipta mestu,“ segir
Lára.
CONGRESS REYKJAVÍK
Skipulögðu 14 uppákomur
á þremur vikum
Á ráðstefnustað: Ingibjörg Hjálmfríðardóttir, Birna B. Berndsen, Þorbjörg Þráinsdóttir, Lára B. Pétursdóttir og Bryndís E. Jóhannsdóttir.
Búa yfir mikilli
reynslu í skipu-
lagi ráðstefna
og funda.
Lára B.
Pétursdóttir
Þorbjörg
Þráinsdóttir
Birna B.
Berndsen
Bryndís E.
Jóhannsdóttir
Ingibjörg
Hjálmfríðardóttir
www.congress.is
ráðstefnuþjónusta
sími 585 3900
Allt samkvæmt áætlun.
Allt með sínu sniði.
P &
Ó
internet.is/po
KYNNING