Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 146
146 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Það efast fáir um að tískubylgjan
í Hollywood er að gera leiknar
kvikmyndir eftir teiknimynda-
sögum. Á síðustu árum hafa
margar teiknimyndahetjur verið
vaktar til lífsins á ný og leika
nú lausum hala um öngstræti
stórborga í dýrum og íburðar-
miklum kvikmyndum. Þessi
bylgja kemur ekki á óvart þegar
haft er í huga að hvergi nýtist
hin fullkomna tæknibrelluverk-
smiðja í Hollywood eins vel og í
kvikmyndum þar sem ævintýrin
gerast enn og raunveruleikinn er
víðs fjarri.
Nýjasta kvikmyndin sem gerð
er eftir grafískri skáldsögu er Sin
City, sem leikstýrt er af Robert
Rodriguez og Frank Miller, en
hann er höfundur Sin City skáld-
sagnanna. Myndin hefur fengið
góðar viðtökur gagnrýnenda sem
og áhorfenda vestan hafs, en hún
var frumsýnd í Bandaríkjunum í
apríl og verður tekin til sýningar
hér á landi 8. júlí. Þykir hún ekki
aðeins spennandi og áhrifamikil
heldur er öll framsetning frum-
leg og um leið vel heppnuð, þar
sem stór hluti myndarinnar er
í svart hvítu með þó ýmsum lit-
brigðum til áhersluauka.
Robert Rodriguez, sem sagði
sig úr leikstjórasamtökunum
í Hollywood þegar honum var
neitað um leyfi til að gera Frank
Miller að meðleikstjóra sínum,
hefur með Sin City skapað sína
best heppnuðu kvikmynd frá því
hann gerði El Mariachi (1992),
en hana gerði hann áður en hann
settist að í Hollywood. Það hefur
mátt sjá glitta í snillinginn í síð-
ari myndum hans en ávallt hefur
vantað herslumuninn. Hefur
Rodriguez því fallið í skuggann
af vini sínum, Quentin Tarantino.
Með Sin City minnkar hann bilið
á milli þeirra þó ekki nái hann
sömu hæðum og Tarantino hefur
náð (Tarantino leikstýrir einu
stuttu atriði í Sin City).
Frank Miller hafði lengi
starfað hjá Marvel teiknimynda-
fyrirtækinu við ýmsar teikni-
myndaseríur áður en hann skap-
aði Sin City seríuna. Hafði hann
að leiðarljósi að persónur sínar
væru engar ofurhetjur og að um
sakamálasögu væri að ræða.
Tókst honum vel upp og eru Sin
City bækurnar í miklu uppáhaldi
hjá fjölmörgum aðdáendum graf-
ískra skáldsagna. Þess má svo
geta að ekkert sérstakt handrit
var skrifað fyrir Sin City, heldur
var notast við texta í þremur
bókum Millers.
Hættuleg borg Sin City er
engin venjuleg borg. Harkan er
í fyrirrúmi, persónur eru upp til
hópa spilltar og bera fortíðina
á herðum sér. Utanaðkomandi
myndi kalla borgina dökka og
óvinveitta. Þeir sem þar búa
kalla hana heimili sitt. Í borg-
inni er hægt að finna allar þær
persónur sem við þekkjum úr
neðanjarðarstarfsemi stórborg-
anna. Þarna eru þó einnig mann-
eskjur sem eru að reyna að gera
rétt í borg sem er sama um orð-
spor sitt. Það eru sögur þeirra
sem sagðar eru í myndinni.
Sin City skiptist í þrjá hluta,
sem stundum tvinnast saman.
Í einni sögunni segir frá Marv
(Mickey Rourke), miklum
töffara, sem hefur alið aldur sinn
í skuggahverfum borgarinnar.
Kvöld eitt hittir hann hina fögru
Goldie (Jamie King) og verður
ástfanginn. Sú sæla stendur ekki
lengi þar sem Goldie er myrt á
heimili hans. Marv er sorgbitinn
og í hefndarhug og eins gott að
verða ekki á vegi hans.
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR KARLSSON
John Hartigan (Bruce Willis)
bjargaði Nancy (Jessica Alba)
úr höndum barnamorðingja
þegar hún var 11 ára gömul.
SYNDABÆLIÐ
Dwight (Clive Owen) heldur verndarhendi yfir Gail (Rosario Dawson).