Frjáls verslun - 01.05.2005, Page 154
154 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 5
Annatími er mikill hjá ferðaskrifstofum á þessum árstíma enda Íslendingar duglegir að ferðast til sólarlanda auk
þess sem útlendingar heimsækja Ísland. Ein
nýjasta ferðaskrifstofa landsins er Sumar-
ferðir, sem stofnuð var af Helga Jóhanns-
syni, fyrrum framkvæmdastjóra Samvinnu-
ferða/Landsýnar. Sumarferðir byrjuðu smátt
en hafa verið að færa sig upp á skaftið enda
boðið ferðir á góðu verði sem slegið hafa í
gegn. Helgi sagði starf sitt hjá Sumarferðum
ekki aðeins snúast um stjórnun á fyrirtæk-
inu:
„Starf mitt er ótrúlega fjölbreytt og fátt
sem ég kem ekki að, nema þá helst að skúra
og gera hreint. Fyrirtækið okkar er fámennt
en frábærlega vel mannað. Við vinnum öll
mjög náið saman og það eru engin leyndar-
mál sem þvælast fyrir innan fyrirtækisins.
Allir verða að geta tekið ákvarðanir þegar á
reynir í því sem þeir sinna helst.“
Helgi segir fyrirtækið hafa vaxið hratt
þann stutta tíma sem það hefur starfað.
„Frá 2003 hefur farþegafjöldi tvöfaldast á
ári hverju, sem þýðir að árið 2005 áætlum
við að flytja 20.000 farþega. Það er langt
umfram þá áætlun sem við lögðum upp með
og er greinilegt að hugmyndin hefur skilað
sér. Í dag eru 85% af okkar farþegum að
bóka sig beint á net-
inu og markmiðið er
að ná því í 95%. Það
hefur komið okkur
skemmtilega á óvart
að finna hversu ótrú-
lega hratt menn hafa
náð að tileinka sér
kosti Internetsins.“
Helgi er viðskipta-
fræðingur að mennt:
„Ég hafði því miður
lagt litla áherslu á
frekari menntun. Það vill reyndar alltof oft
loða við að eftir að menn hafa lokið sínu
námi þá sökkva þeir sér niður í vinnu og líta
ekki upp fyrr en þeir uppgötva að starfið
verður þeim sífellt erfiðara og að þeir hrein-
lega dragast aftur úr. Sem betur fór áttaði
ég mig á þessu þó að ég hefði óskað að það
gerðist fyrr og dreif mig í framhaldsnám. Það
er alveg ljóst að til þess að halda sér í fyrstu
deild verða menn að fylgjast með.“
Helgi er þekktur bridgemaður og marg-
faldur Íslandsmeistari og það kemur ekki
á óvart þegar hann
segir bridge vera eitt
aðaláhugamálið sitt:
„Líf mitt hefur mikið
snúist um bridge
og ferðalög og fjöl-
skyldan hefur staðið
þétt á bak við mig í
þessum málum. Nú,
annars er ég alæta á
íþróttir og á örugg-
lega eftir að bregða
mér í golfferð í haust.
Hvað varðar ferðalögin þá hef ég alla mína
tíð verið mikið fyrir að ferðast og þá ekki
síst innanlands, enda landið okkar einstakt
og ég hef enn ekki uppgötvað stað úti í
heimi sem toppar Ísland,“ sagði Helgi að
lokum. Og þess má geta að þegar viðtalið fór
fram var Helgi að undirbúa ferð með hóp á
Langanes.
framkvæmdastjóri Sumarferða
Helgi
Jóhannsson
Nafn: Helgi Jóhannsson.
Fæðingarstaður: Keflavík, 23. apríl 1951.
Foreldrar: Jóhann Pétursson og Kristrún
Helgadóttir.
Maki: Hjördís Bjarnason.
Börn: Gunnar Fjalar Helgason, Óttar Örn
Helgason og Hallur Már Helgason.
Menntun: Viðskiptafræðingur frá HÍ. MBA
í rafrænum viðskiptum frá HR.
Helgi Jóhannsson: „Ég hef enn ekki uppgötvað stað úti í heimi sem toppar Ísland.“
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
FÓLK