Ægir - 01.07.2003, Side 69
næstu misserum, það fer væntan-
lega töluvert eftir því hvort aukn-
ing í ýsuveiðinni verður viðvar-
andi og markaðurinn bregst við.
Ég hef ákveðnar áhyggjur af þessu
og það kæmi mér ekki á óvart
þótt margir ýsuframleiðendur
verði fyrir töluverðum vonbrigð-
um með ýsuverðið í vetur.“
Niðursveifla eftir
langvarandi góðæri
- Í ljósi þessa aukna framboðs af
ýsunni, má ekki búast við því að
erfitt verði að vinna nýja ýsu-
markaði?
„Það sem er afgerandi þáttur er
verð á vörunni. Staðreyndin er sú
að það hefur tekist að vinna nýja
markaði fyrir ódýrar vöru. Und-
anfarin ár hafa bæði þorskur og
ýsa verið dýrar vörur og á sama
tíma hafa ódýrari tegundir komið
inn á markaðina og náð töluverðri
hlutdeild. Íslenskur fiskur hefur
verið í háu verði á undanförnum
árum og það er mitt mat að verð-
ið hafi verið orðið of hátt og því
er fiskurinn of dýr valkostur í
samkeppni við mun ódýrari teg-
undir matvæla. Það má segja að
íslenskur fiskur hafi verið í mjög
háu verði allar götur frá 1994 og
það er í raun ekki fyrr en á þessu
ári sem við verðum varir við að
mönnum þykir verðlagið of hátt.
Ég tel að verðlækkanir á íslensk-
um fiski á þessu ári megi skýra að
stærstum hluta með því að eftir
óvenju langt góðæri sé komin
ákveðin niðursveifla. Til viðbótar
hafa miklir sumarhitar haft nei-
kvæð áhrif á fiskneysluna, en ég
geri mér vonir um núna eftir að
skólarnir eru aftur komnir í fullan
gang aukist neyslan á nýjan leik.“
Heilfrystur þorskur af norsk-
um frystitogurum til Kína
„Viðskipti með íslenskan fisk eru
um þriðjungur af okkar veltu.
Við seljum töluvert af svokölluð-
um heilfrystum rússaþorski úr
Barentshafi til framhaldsvinnslu,
fyrst og fremst til Kína og Ný-
fundnalands. Þegar ég seldi fyrsta
farminn af fiski til Kína fyrir fjór-
um, taldi ég nokkuð öruggt að
þetta væri bóla sem myndi
hjaðna. Ég gerði mér þó ferð til
Kína og sá með eigin augum að
Kínverjarnir voru þá þegar að
standa vel að málum og því var
ljóst í mínum huga að kínversk
fiskvinnsla kynni að ógna hefð-
bundinni frystihúsavinnslu á Ís-
landi og víðar. Þetta er að koma á
daginn. En Kínverjar geta aldrei
keppt við Íslendinga með ferskan
flugfisk og í mínum huga er al-
veg ljóst að íslensk fiskvinnsla
mun leggja æ meiri áherslu á
fersku vöruna á næstu árum.
Þetta er líka í takt við það sem
markaðurinn hér vill. Á einu ári
hefur orðið 17% aukning í því
sem hér er kallað Chilled Seafood
- þ.e. tilbúnir fiskréttir. Á nýjasta
verksmiðjuskipi færeyska flotans
er brugðist við kröfum markaðar-
ins með því að vinna vörurnar
samkvæmt óskum kaupenda og
það er spurning hvort menn muni
færa sig í þessa átt með íslensku
frystiskipin. En mér sýnist að
flakafrystingin úti á sjó geti að
óbreyttu átt í vök að verjast á
næstu árum.“
Páll telur að verði viðvarandi
verðlækkanir á bolfiskafurðum
unnum um borð í íslensku frysti-
skipunum, hljóti menn líka að
velta því fyrir sér að heilfrysta
fiskinn um borð og senda hann
þannig til framhaldsvinnslu, t.d. í
Kína. „Menn hljóta að horfa á
framlegðina af þessum veiðum,
hvað fæst fyrir kílóið upp úr sjó.
Ég veit dæmi þess að norsk frysti-
skip eru farin að heilfrysta bol-
fiskinn til framhaldsvinnslu í
Kína og ekki kæmi mér á óvart
að þróunin verði einnig í þá átt á
Íslandi,“ sagði Páll.
69
F I S K Ú T F L U T N I N G U R
Í takt við aukinn útflutning á ferskum fiski hefur fyrirtækinu Ísgeli
vaxið fiskur um hrygg. Ísgel, sem var stofnað árið 1999 af tveimur
konum á Hvammstanga, Fríðu Pálmadóttur og Guðfinnu Ingimarsdótt-
ur, hefur frá byrjun lagt mikla áherslu á framleiðslu á svokölluðum
gelmottum til kælingar fyrir fiskútflutningsfyrirtæki, rannsóknarstofn-
anir og matvælafyrirtæki. Guðfinna segir að gelmotturnar séu um
85% af framleiðslu fyrirtækisins, en einnig framleiðir Ísgel m.a.
margnota hita- og kæligelbakstra sem eru settir á eymsli.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur framleiðsla Ísgels vakið mikla athygli
og eftirtekt. Þannig hefur fyrirtækið m.a. fengið viðurkenningu Iðn-
tæknistofnunar fyrir brautryðjendastarf.
Nýverið flutti Ísgel starfsemi sína frá Hvammstanga til Blönduóss
og er þar til húsa að Húnabraut 21.
Ísgel hf. á Blönduósi:
Aukning
í gelmottunum
Um þriðjungur
veltu Icebrit í
Grimsby er af við-
skiptum með fersk-
an fisk frá Íslandi,
sem er fluttur til
Bretlands í gámum
og flugi.