Ægir - 01.03.2007, Síða 10
10
Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R
Afmælisbarnið „Ægir“ orðið
eitt hundrað ára. Það er saga
til næsta bæjar. Það liggur
ekki fyrir mörgum tímaritum
að verða svo gömul. Því er
ástæða til að fagna slíkum
áfanga; óska afmælisbarninu
til hamingju og góðs gengis
næstu hundrað árin a.m.k.
Ég naut þeirrar ánægju að
bera titil ritstjóra Ægis um
stutt skeið fyrir nærri áratug.
Athygli hf. hafði þó veg og
vanda af tilurð blaðsins og sá
Jóhann Ólafur Halldórsson að
mestu um skriftir í það. Þá
hafði Fiskifélag Íslands gefið
blaðið út allt frá árinu 1912,
en síðustu árin höfðu aðrir
aðilar unnið blaðið í verktöku
fyrir félagið og Athygli síð-
ustu árin. Sú ráðstöfun að fela
aðilum utan félagsins að
vinna að útgáfu Ægis og síð-
an sala útgáfuréttarins til At-
hygli vitnaði um breytta tíma;
breyttar forsendur í blaða-
útgáfu. Ekki er annað að sjá
en að Athygli hf. hafi fyllilega
staðið undir væntingum. Æg-
ir, sem að árafjölda er öld-
ungur, er sprækur sem ungl-
ingur. Blaðið hefur aðlagað
sig að tíðarandanum en þó
haldið í gamlar hefðir eftir því
sem við á. Blaðið hefur til-
gang í íslenskum sjávarútvegi
og sinnir honum af kost-
gæfni.
Ægir í heila öld
Það er áhugavert að fletta
Ægi í gegnum tíðina. Það er
óþarfi að taka fram að að-
stæður í íslensku þjóðfélagi
voru með allt öðrum blæ,
þegar Ægir steig sín fyrstu
spor, heldur en nú. Ísland var
fátækt bændasamfélag og
sjávarútvegur ekki tekinn við
sem helsta atvinnugrein þjóð-
félagsins. Ægir og síðar Fiski-
félag Íslands, sem áttu lengst
af samleið, var ætlað að ýta
undir þá þróun, sem síðar
varð, að efla sjávarútveg sem
mest mætti vera. Það hefur
svo sannarlega tekist þótt
skoðanir um hver hlutur
Fiskifélagsins og Ægis í þeirri
þróun séu eflaust skiptar.
Ægir þjónaði lengst af að
miklu leyti þeim tilgangi að
birta ýmiss konar tölfræðileg-
ar upplýsingar um sjávarút-
veg. Blaðið var jafnframt vett-
vangur vísindamanna til að
kynna niðurstöður sínar og
umræðuvettvangur aðila inn-
an greinarinnar um þau mál
sem hæst bar hverju sinni. Þá
er í Ægi að finna betri upp-
lýsingar um hag og ástand
sjávarútvegs á hverjum tíma
en annars staðar finnast. Ægir
er þannig í meira mæli en
nokkurt annað rit brunnur
fróðleiks um íslenskan sjáv-
arútveg.
Breyttar aðstæður
En efnistök hafa breyst í ljósi
þess að aðrir aðilar í þjóð-
félaginu hafa tekið að sér
sum þeirra verkefna sem Æg-
ir hefur þjónað í gegnum tíð-
ina. Þannig eru upplýsingar
um hagstærðir sjávarútvegsins
nú aðgengilegar hjá til þess
ætluðum stofnunum og al-
menn þjóðfélagsumræða fer
að nokkru leyti fram í miðl-
um, sem hafa styttri líftíma en
Ægir. Ægir hefur hins vegar
þá sérstöðu að það sem þar
birtist lifir lengi. Ægir liggur
lengur frammi til aflestrar en
mörg önnur blöð og er því
enn – og verður vonandi um
ókomna tíð – hinn rétti vett-
vangur fyrir efni, sem höfðar
til lengri tíma en einföld dæg-
urmál.
Sjávarútvegur og þjóðfé-
lagið mótast af eigin forsend-
um. Ægir á að sjálfsögðu þátt
í að móta þróunina. Fyrst og
fremst er það þó verkefni
þeirra sem stýra Ægi að fylg-
jast með og aðlaga blaðið að
þeim breytingum sem verða
og þeim tíðaranda sem þær
skapa. Blaðið þarf hins vegar
að gæta þeirrar sérstöðu, sem
það hefur. Ægir á að gæta
þess að á síðum þess megi
lesa þróun greinarinar og það
megi til framtíðar verða hand-
hæg heimild um íslenskan
sjávarútveg í bráð og lengd.
Þessu hlutverki getur blaðið
hæglega sinnt og það er hæg-
ur vandi að vera samtímis
skemmtilegt aflestrar.
Afmæliskveðjur
Það er mér ljúft fyrir hönd
Fiskifélags Íslands að óska
Ægi til hamingju með hundr-
að árin og óska aðstandend-
um Ægis hins sama. Það er
heillandi verkefni að stýra
Ægi á annarri öld líftíma
hans, halda í þær hefðir sem
myndast hafa og bæta þær
eftir því sem tíðarandinn
krefst. Ægir getur verið og er
góður vettvangur umræðu og
skoðanaskipta, fræðslu um
líðandi stund, framtíðarsýnar
og skemmtunar. Megi kom-
andi stundir verða Ægi góðar
Pétur Bjarnason,
formaður stjórnar Fiskifélags Íslands.
Ægir á að sjálfsögðu þátt í að móta þró-
unina. Fyrst og fremst er það þó verkefni
þeirra sem stýra Ægi að fylgjast með og
aðlaga blaðið að þeim breytingum sem verða
og þeim tíðaranda sem þær skapa.
Pétur Bjarnason, formaður stjórnar Fiskifélags Íslands.
Afmæliskveðjur
til aldargamals Ægis