Ægir - 01.03.2007, Page 20
20
Æ G I R Í H U N D R A Ð Á R
Um síðastliðin áramót átti að
taka gildi reglugerð um að all-
ir sem skráðir eru á skip skuli
hafa farið á öryggisfræðslu-
námskeið Slysavarnaskóla
sjómanna. Þá brá svo við að í
ljós kom að verulegur fjöldi
sjómanna hafði ekki farið á
námskeiðin. Raunar mikið
fleiri en nokkrum datt í hug.
Þetta hlýtur að teljast und-
arlegt í ljósi þess að þetta
hefur verið skylda í mörg ár,
þó svo að hægt hafi verið að
fá undanþágu frá þessu hjá
Siglingastofnun Íslands ef
sótt var um að fara á nám-
skeið. Í ljósi þeirra vandkvæða
sem voru á því að koma flot-
anum á sjó í upphafi þessa
árs var gildistöku reglugerð-
arinnar frestað um eitt ár eða
til næstu áramóta.
Þegar skoðaðar eru upplýsing-
ar úr lögskráningarkerfi sjó-
manna fyrir árið 2006, um ör-
yggisfræðslunámskeið og end-
urmenntun, kemur margt und-
arlegt í ljós. Samtals voru
6144 sjómenn lögskráðir á því
ári, en aðeins 4115 þeirra
höfðu lokið grunnnámskeiði
öryggisfræðslu eða rétt rúm-
lega tveir af hverjum þremur
sjómönnum.
490 sjómenn höfðu ekki
lokið grunnnámskeiði örygg-
isfræðslu, en höfðu skráð sig
á námskeið hjá Slysavarna-
skólanum, og þar með fengið
frest hjá Siglingastofnun til að
sækja námskeiðið. Það sem
hvað mesta furðu vekur er að
ekki færri en 1539 höfðu
hvorki lokið grunnnámskeiði
öryggisfræðslu né skráð sig á
námskeið, eða fengið frest hjá
Siglingastofnun til að sækja
námskeið.
Tæplega 1400 sjómenn af
þeim sem lögskráðir voru á
árinu 2006 höfðu lokið grunn-
námskeiði fyrir 1. september
2001 en ekki komið í end-
urmenntun og er því stór hóp-
ur manna sem þarf að sækja
endurmenntunarnámskeið.
Slysavarnaskólinn fyrirhug-
ar að halda milli 60 og 70
endurmenntunarnámskeið á
þessu ári sem er um það bil
tvöföldun frá fyrri árum.
Slysavarnaskólinn vinnur að
því að bjóða upp á fjarnám í
bóklegum þætti endurmennt-
unarinnar, þannig að tekið
verður stöðupróf í skólanum
auk verklegrar þjálfunar. Öll-
um sjómönnum sem ekki
hafa lokið tilskyldum nám-
skeiðum hefur verið eða
verður sent bréf þar sem vak-
in er athygli þeirra á stöðu
mála og upplýsingar um nám-
skeið sem í boði eru. Þá verð-
ur sent bréf til allra útgerða
innan LÍÚ með upplýsingum
um hvernig málið stendur.
Það er alveg ljóst og ég
hef vakið athygli á því áður
að lögskráningarstjórar eða
fulltrúar þeirra hafa ekki stað-
ið sig í því að fylgja því eftir
að sjómenn uppfylli kröfu um
öryggisnámskeið sjómanna,
þrátt fyrir marg ítrekaðar
áminningar frá Siglingastofn-
un. Það hefur því verið
brugðið á það ráð að setja
læsingu á lögskráningu sjó-
manna þannig að ekki á að
vera hægt að lögskrá mann
nema hann uppfylli þær kröf-
ur sem gerðar eru um örygg-
isfræðslu hans. Það er alveg
ljóst að þó Slysavarnaskólinn
hafi brugðist við og muni
reyna að leysa þann vanda
sem við blasir mun það ekki
takast ef allir geyma það til
haustsins að leysa úr sínum
málum. Ég bið því menn að
skoða sín mál sem fyrst og
vegna starfa sinna að draga
það ekki lengur en þörf kref-
ur að fara á námskeið Slysa-
varnaskólans.
Því miður er það svo að
þeim tímaritum sem fjalla um
sjávarútveg sérstaklega hefur
fækkað á undanförnum árum,
það er því ánægjulegt að Æg-
ir skuli vera að fylla hundrað
ár um þessar mundir.
Til hamingju ritstjóri og út-
gefendur.
Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands Íslands.
Öryggisfræðsla
sjómanna
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.
Það er alveg ljóst og ég hef vakið athygli á
því áður að lögskráningarstjórar eða fulltrúar
þeirra hafa ekki staðið sig í því að fylgja því
eftir að sjómenn uppfylli kröfu um örygg-
isnámskeið sjómanna, þrátt fyrir marg ítrek-
aðar áminningar frá Siglingastofnun.