Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.2007, Side 47

Ægir - 01.03.2007, Side 47
47 Jónas Jónsson, stýrimaður á Gullveri NS: Mjög ánægður með trollið „Við tókum T 90 trollið um borð hjá okkur fyrir nokkrum mán- uðum og notumst nær eingöngu við það í dag. Almennt er ég bara mjög ánægður með það. Þetta er í raun sama trollið og við vorum með, en netinu var snúið og það haft þversum. Við lentum í smá byrjunarörðugleikum, en við þeim var brugðist með því að breikka „skverann“ og jafnframt var höfuðlínan lengd um þrjá metra. Síðan hefur þetta gengið mjög vel og vart þurft að líta á trollið. Möskvarnir opna sig betur og fyrir vikið verður meira sjóflæði í gegnum trollið. Hvað aflann áhrærir, þá er hann í það minnsta jafn mikill og með eldra trolli, jafnvel meiri. Þetta er þó eitthvað sem erfitt er að kveða upp úr um fyrr en eftir lengri notkun.“ Snorri Snorrason, skipstjóri á Klakki SK: Góð reynsla „Við erum búnir að hafa trollið hér um borð í rúman mánuð og það hefur reynst afar vel. Við erum með tvö troll, en ég er nær eingöngu farinn að nota T 90 trollið. Það er klárlega létt- ara að draga þetta troll og fyrir vikið sýnist mér nokkuð ljóst að olíueyðslan er minni. Það verður þó betra að meta þegar veðrið verður orðið betra með hækkandi sól. Við erum að stærstum hluta á þorskveiðum og ég tel að trollið sé til þess fallið að sía frá smærri fiskinn og þannig losnum við við fisk undir 50 cm. Það er til mikils að vinna. Að öllu samanlögðu tel ég að þessi nýja útfærsla á trolli sé mjög vel heppnuð og í mínum huga er þetta komið til að vera.“ Sverrir Gunnlaugsson, skipstjóri á Jóni Vídalín VE: Það sem koma skal „Ég hafði kynnt mér þetta T 90 troll og ákvað að við skyldum taka það um borð. Við tókum trollið um borð hjá okkur í jan- úar sl. og skemmst er frá því að segja að það hefur virkað geysilega vel. Ég held að óhætt sé að segja að við séum í skýjunum með þetta. Það er engin spurning að trollið er tölu- vert léttara í drætti, enda er mótstaðan mun minni en í öðr- um trollum sem ég hef prófað. Trollið er áberandi klárt í sjón- um, það spennir sig vel út. Það sem meira er að það hefur vart þurft að líta á trollið síðan við tókum það í notkun, ég held að það hafi komið tvær minniháttar sprettur á það eftir grjót, annað ekki. Í mínum huga er þetta hrein snilld hjá Her- manni og tvímælalaust það sem koma skal.“ Sigtryggur Gíslason – Bóbó – skipstjóri á Björgvini EA: Tilfinningin að trollið sé léttara í drætti „Við höfum verið með T 90 trollið um borð síðan í september. Fyrir jólin vorum við mest í þorski og trollið kom bara vel út í þeim veiðum. Við höfum líka notað það í öðrum veiðum og mín tilfinning er sú að það henti jafnvel betur í öðrum tegund- um, t.d. ýsu og karfa. Olíumælirinn okkar hefur ekki verið í lagi þannig að við höfum ekki getað mælt olíunotkunina, en tilfinning mín er sú að þetta troll sé léttara í drætti og ol- íueyðslan því minni við að draga þetta troll en hefðbundið troll, sem þarf kannski ekki að koma á óvart þar sem í því er um 300 kg minna af neti. Mér sýnist að í stórum dráttum sé þetta troll að gefa mjög svipað af fiski og eldri troll.“ V E I Ð A R F Æ R A G E R Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.