Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2007, Page 54

Ægir - 01.03.2007, Page 54
54 „Sú tíð er liðin að menn geti nýtt auðlindir náttúrunnar, án þess að taka tillit til umhverf- isins. Tillitslaus nýting ber dauðann í sér, hvort sem slíkt er ofnýting stofna eða um- gengni sem eyðileggur um- hverfið með mengun eða um- turnun vistkerfa. Drifkraft- urinn þarf ekki að vera sá að umhverfissamtök krefjist ein- hvers. Vitund fyrir bættri um- gengni og skynsamlegri nýt- ingu á að koma að innan. Það gerist fyrst og fremst með því að menn séu vel upplýstir um ástand lífríkisins í hafinu og þau áhrif sem menn hafa þar,“ segir Guðrún Pétursdótt- ir framkvæmdastjóri Stofn- unar Sæmundar fróða. Stofnun Sæmundar fróða annast rannsóknir á sjálfbærri þróun og þverfræðilegar rannsóknir við Háskóla Ís- lands. Áður var Guðrún Pét- ursdóttir um árabil forstöðu- maður Sjávarútvegsstofnunar Háskóla Íslands, sem nú hef- ur runnið inn í nýja stofnun. Það er litlum vafa undiropið, að mati Guðrúnar, að íslensk- ur sjávarútvegur taki miklum breytingum á komandi tíð. Hún bendir á að alþjóðlega séu gerðar auknar kröfur um að sjávarútvegur sé sjálfbær og afurðirnar rekjanlegar. Þáttur í sjálfbærum sjávarút- vegi sé svokölluð vistkerf- análgun við stjórn fiskveiða. Fjölstofnarannsóknir munu styrkjast „Vistkerfanálgun þýðir að menn taka ekki bara tillit til ástands einstakra tegunda eða stofna, heldur horfa á vist- kerfið í víðara samhengi. Þetta kallar á svæðabundna stjórn nýtingarinnar. Því er ekkert vit í hnattrænni stjórn- un fiskveiða. Enginn fiskiteg- und hefur svo víðtæka út- breiðslu og segja má að hnattræni hugsunarhátturinn samrýmist ekki svæðanálg- uninni. Af þeim sökum geri ég ráð fyrir að veiðistjórn verði nákvæmari og stað- bundnari - og svæðalokunum verði beitt í ríkari mæli en nú er. Fjölstofnarannsóknir munu styrkjast og menn hugsa um fleiri hlekki í lífkeðjunni, þeg- ar aflamark á hverri tegund er ákveðið. Áhrif veiðarfæra á umhverfið verða í brennidepli og ekki verður hjá því komist að gera miklu ítarlegri rann- sóknir á þeim. Botnvarpan er þegar komin á sakabekkinn og menn munu þurfa að geta sannað að hún skaði ekki mikilvæg búsvæði og upp- vaxtarskilyrði ef notkun henn- ar á ekki að leggjast af smám saman,“ segir Guðrún. Hún bendir á, að á fundi CODI í mars sl. hafi verið ákveðið að auka vistkerf- análgun fiskveiðistjórnar smám saman, það er eftir því sem þekking á vistkerfunum aukist og jafnframt að hún yrði byggð á þeim stjórnkerf- um sem þegar eru fyrir hendi. Gera megi ráð fyrir að Íslend- ingar lagi sínar aðferðir að þessu áherslum í fyllingu tím- ans. Mikil þróun vegna markaðarins Alþjóðlegar pólitískar skuld- bindingar - sem Íslendingar gætu þurft að eiga aðild að – geta hugsanlega breytt áherslum í íslenskum sjáv- arútvegi, að mati Guðrúnar Pétursdóttur. Hún bendir á að Íslendingar hafi þegar játast - með glöðu geði - ýmsum al- þjóðlegum skuldbindum, sem hafi breytt skilyrðum sjávarút- vegs mikið. Hafréttarsáttmáli SÞ sé þar skýrasta dæmið. Stóra spurningin sé hins veg- ar sú hvort alþjóða skuldbind- ingar eða síbreyttar kröfur markaðarins séu meiri drif- kraftur breytingar. „Íslenskur sjávarútvegur hefur þróast meira á undanförnum árum vegna krafna markaðar- ins en vegna alþjóðaskuld- bindinga. Við höfum orðið að temja okkur sveigjanleika og ég hef engar áhyggjur af því að við höldum ekki þeirri hæfni. Í gegnum fjárfestingar erlendis færist íslenskur sjáv- arútvegur sífellt nær kaup- endum afurðanna. Sú nálægð gerir kröfur neytandans há- værari og skýrari. Við þeim hljótum við að bregðast,“ seg- ir Guðrún Pétursdóttir. Á hágæðamarkaði Í dag eru ýmsir stofnar og tegundir fisks og sjávarlífvera það sem kalla má vannýttar og þar liggja eflaust tækifæri, fyrir íslensku fisksölufyrirtæk- in að mati Guðrúnar og bend- ir á að ekki þurfi að fara langt aftur í Íslandssögunni til að finna dæmi um breytt hug- arfar gagnvart sjávarfangi. „Þegar ég var stelpa var al- gengt að humar og rækja væru talin algert óæti. Meira í ætt við pöddur en mat og það þótti alveg dæmigert fyrir útlendinga að leggja sér svona lagað til munns. Að undanförnu höfum við haslað okkur völl á hágæðamarkaði og segja má með sanni að gerbreyting hafi orðið á áherslum íslenskra fisksölu- fyrirtækja,“ segir Guðrún sem telur að bæði í sjávarútvegi og landbúnaði eigi áherslur Íslendinga að beinast að gæð- um í stað magns. Hugtakið aflakóngur sé horfið og því leggi hún til að við búum okkur undir að krýna afla- verðmætakónginn. Minni sneið af stærri köku Í útvarpsviðtali fyrir nokkrum árum sagði Guðrún eitthvað á þá leið að sá tími væri liðinn að togari í hverju þorpi væri einskonar „sjálfsstæðisyfirlýs- ing“ byggðarlaganna. Að- spurð um hvort framvinda mála í sjávarbyggðunum verði á sama veg og gerst hefur á undanförnum árum þá segist hún telja að svo verði. „Við sjáum þessa þróun með berum augum og við henni verður ekki spornað nema á stöku stað. Markið er ekki að viðhalda fiskvinnslu, heldur atvinnu. Það liggja gífurleg verðmæti í þessum byggðum, þar eru ekki aðeins íbúð- arhús, heldur innviðir og F R A M T Í Ð Í S L E N S K S S J Á V A R Ú T V E G S Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða: Ekkert vit í hnattrænni stjórnun fiskveiða Guðrún Pétursdóttir: Enginn fiskitegund hefur svo víðtæka útbreiðslu og segja má að hnattræni hugsunarhátturinn samrýmist ekki svæðanálguninni. Af þeim sökum geri ég ráð fyrir að veiðistjórn verði nákvæmari og staðbundnari - og svæðalok- unum verði beitt í ríkari mæli en nú er. Mynd: Óskar P. Friðriksson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.