Ægir

Volume

Ægir - 01.03.2007, Page 112

Ægir - 01.03.2007, Page 112
112 F R É T T I R Eftir tveggja ára þróunarvinnu og 140 milljóna króna fjár- festingu setur Marport á markað nýja miðeiningu fyrir nema sem nefnist A1 (allt í einum) . Þessi eining leysir af hólmi 22 mismunandi PC-borð sem voru gjarnan hönnuð fyrir eina tiltekna aðgerð. Í fram- tíðinni verður því einungis ein miðeining sem þjónar öllum nemum. Óskar Axelsson, fram- kvæmdastjóri Marports, segir að meðal nýjunga megi nefna að einn nemi verði fær um allt að sjö aðgerðir í stað tveggja að hámarki áður. Nemana sé unnt að forrita með þráðlausu Bluethoot sambandi þegar þeir séu á dekki. Einnig sé í nemanum SD minniseining, sem geti tekið upp allt að 4 GB af gögnum með mun meiri upp- lausn heldur en hægt er með þráðlausri sendingu upp í skip. Á þessu ári mun Marport setja á markað um það bil 40 ný vörunúmer sem byggast á A1 tækninni. Þetta er gerlegt með því að við hönnun A1 var notuð ný tækni sem nefn- ist SDR (Software Difined Ra- dio). Þar sem áður þurfti að skipta um einstaka íhluti er nú hægt að breyta virkni með því að skipta um hugbúnað. Einnig má nefna að hita- og dýpismæling verður með allt annarri nákvæmni heldur en þekkst hefur áður utan vís- indageirans. Gagnasöfnun var grunnhugsunin „Grunnhugsunin sem höfð var að leiðarljósi við hönnun A1 var gagnasöfnun,” segir Óskar. „Það er skoðun okkar að gagnasöfnun um borð í fiskiskipum sé alltof lítill gaumur gefinn af vísinda- mönnum. Á sama tíma og hafrannsóknaskip flestra landa eru bundin við bryggju lungann úr árinu erum við með gríðarlegan fjölda fiski- skipa á ferðinni með yfir 300 úthaldsdaga á ári. Því höfum við útbúið nemana með ná- kvæmnis mælitækjum auk þess sem öll gögn í Brúarein- ingu eru vistuð ásamt stað- setningu og tíma. Að sjálf- sögðu nýtast þessi gögn í rauntíma um borð í skipinu bæði við stjórnun veiðarfæra og aðra ákvarðanatöku tengda veiðunum, en væru ekki síður áhugaverð viðbót við núverandi gagnasöfnun hafrannsóknageirans. Með nútíma fjarskiptum, þar sem mörg skip eru komin með háhraða nettengingu, mætti hugsa sér að vísindamenn gætu í raun haft beinan að- gang að því sem væri að ger- ast á miðunum. Mikill vöxtur Marport er nú með starfs- stöðvar í fjórum löndum; Bandaríkjunum, Kanada, Ís- landi og Frakklandi og heild- ar starfsmannafjöldi er nú 30. Að sögn Óskars varð gríð- arleg söluaukning hjá fyr- irtækinu á síðasta ári og árið í ár lítur enn betur út, fyrirliggj- andi eru pantanir í fjölda ný- smíða allt fram til ársins 2010. Marport flutti í byrjun apríl í ný og glæsileg húsakynni að Fossaleyni 16 í Reykjavík. Stór áfangi hjá Marporti: Setur á markað A1 - nýja miðeiningu fyrir nema Hér er Óskar Axelsson, framkvæmdastjóri Marports, með nýjan straumhraðanema, sem hægt er að forrita sem skekkjunema, toghraðanema eða grindarnema. Myndir: Sigurður Bogi Sævarsson. Það fer ekki mikið fyrir A1. En þessi tæknibylting hefur þó verið í þróun í tvö ár og þróunarkostnaðurinn er á annað hundrað milljónir króna. Blásum vandanum burt með þurrís sem gufar upp! Ísblástur ehf. | Stórási 4 | 210 Garðabæ Sími 567 2819 | isblastur@isblastur.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.