Tímarit Máls og menningar - 01.09.1944, Blaðsíða 33
HALLÐÓR KILJAN LAXNESS:
Síðustu ljóð Nordahls Griegs
Síðustu ljóð Nordahls Grieg,
Friheten, hafa verið prentuð
hér á íslandi og send Norð-
mönnum í Lundúnum. Það eru
tuttugu kvæði auk stuttrar frá-
sagnar í óbundnu máli. Þessi
ljóðabók fjallar öll um það
stríð fyrir frelsi Noregs, sem
Nordahl Grieg háði, bæði sem
skáld og hermaður, gegn ó-
vinum norsku þjóðarinnar.
Ljóðin eru öll tileinkuð konu
hans. Þau eru ort á ýmsum
herstöðvum þar sem hann innti
þjónustu af höndum í stríðinu.
Sum eru bundin minningar-
hátíðum norsku þjóðarinnar
eða helgum þjóðernistáknum,
öll eru þau herhvöt. Hann yrkir kvæði um Lundúni þar sem hann
lofar sálarþrek hinnar eingilsaxnesku höfuðborgar; þar minnist
hann blómsölukonunnar sem komin var með stjörnublómin á götu-
hornið sitt, eins og ekkert hefði í skorizt, að morgni eftir sprengju-
regn og hrun. Hann yrkir kvæði til Svíþjóðar, sem hefst á þessum
raunalegu orðum: „vi kan ikke altid skimte deg, bror“ — þú
hverfur okkur stundum, bróðir; eða: við grillum þig ekki alténd,
bróðir, af því óveðrið skilur garða okkar. Hann yrkir einnig langt
kvæði um Hákon konung, sem hefur að hætti fornra konunga orðið
Nordahl Grieg