Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Qupperneq 10
184
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Nýtt ríki, já, því að hversu illa sem hræddum sálum kann að
líka það, þá er Frakkland nú að framkvæma nýja stjórnarbyltingu,
og ég mun varla hika við að bera hana saman við stjórnarbylting-
una miklu. Það má að minnsta kosti fullyrða, að þeir, sem af van-
þekkingu á sögu landsins og getu þjóðarinnar, héldu Frakkland á
grafarbarmi, munu brátt sjá upp stíga land, endurborið, auðugra,
voldugra og meira en nokkru sinni fyrr.
Eg bið ykkur að líta ekki á þetta sem fánýtan spádóm, því að
þetta nýja ríki er þegar í smíðum fyrir augum okkar. Svo sem ég
hef þegar sagt, var grunnurinn lagður á hinurn fjórum árum blóðs
og tára, sem teljast mega drungalegasta tímabil í sögu þjóðarinnar
og nú er reist af grunni í gleði endurheimts frelsis, fyrir opnum
tj öldum.
Fyrirkomulag byggingarinnar? Það má finna í áætluninni, sem
franska mótspyrnuhreyfingin bjó út á tímuni þýzka hernámsins og
samþykkt var af de Gaulle hershöfðingja og stjórn hans. Það má
líka finna í því, sem þegar hefur áunnizt.
Þá er það fyrst, að eitt er löngu visst: hin mikla harðstjórn, sem
Frakkar hafa orðið að þola, hefur tengt þá lýðræðinu enn sterkari
böndum. Þeir hafa aldrei fallið frá gömlu einkunnarorðum lýð-
veldisins, frelsi, jafnrétti, bræðralagi, sem sátu rist í hjörtu þeirra,
þó að þau væru máð af opinberum stórhýsum.
Frakkland er ennþá lýðveldi. Athugið það, að það er fulltrúi
bráðabirgðastjórnar franska lýðveldisins, sem talar til ykkar. Hin
skammarlega löggjöf, sem þý óvinanna hrófaði upp, í brjálæðis-
kenndri von um að snúa til nazisma landi mannréttindanna, hefur
verið felld niður og lög lýðveldisins tekin upp. Annars má geta þess,
að þessi lög höfðu alltaf verið í heiðri liöfð í þeim nýlendum
Frakka, sem snúizt höfðu á sveif með de Gaulle.
En franska þjóðin lætur sér ekki nægja einfalt afturhvarf til for-
tíðarinnar. Hún vill nýtt lýðveldi. Hún vill fyrst og fremst,. að þetta
lýðveldi sé hreint og ómengað. Og hún krefst þess, að öllum þeim,
sem unnið hafa að nýskipan Hitlers, verði tafarlaust og miskunnar-
laust vikið frá og að eftirminnileg refsing bitni á þeim, sem hafa
svikið land sitt, en stutt óvinina í þeirra myrkraverkum. Frá því
landið leystist úr ánauð hafa þessir menn, sem þið getið verið viss