Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 96
270 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Svona getur snilligáfa mannanna stundum leitt þá inn á undarlegar brautir. Vegir guðs eru órannsakanlegir. Að öllu þessu athuguðu verðum við að draga þá ályktun, að rit- málið drottni yfir hinu mælta. Ef hinu mælta máli er að hraka, þrátt fyrir allt, sem gert er til að halda því í horfinu, þá er eitthvað öðru- vísi en vera á um hið ritaða mál. En gera verður ráð fyrir, að blaðamenn, fræðimenn og rithöfundar rísi upp og segi í einum kór: Sjá, saklaus er ég, af blóði hins réttláta. Arfur eymdarinnar Á niðurlægingartímum þjóðarinnar var kanselístílnum prangað inn á hana^ Allt sem hin aðframkomna þjóð átti að gera, eða ógert að láta, var birt henni í þessum skipunar- og vindbelgingarstíl. Ætla mætti, að þessi arfur eymdarinnar væri nú að fullu eyddur og að leifurn hans hefði verið komið fyrir kattarnef um leið og lýðveldið var endurreist. En slíku er þó ekki til að dreifa. Við lumum á þessu óféti enn þann dag í dag. 011 svokölluð opinber erindi eru sett saman í þessum stíl — lög, reglugerðir og hvers konar boð og bönn. Þetta ætti nú að vera nóg. En kanselístíllinn kemur víðar við sögu. Blaðamenn nota liann mikið, sérstaklega ef þeim er mikið niðri fyrir, eða þegar þeir vilja vera hátíðlegir. Sömuleiðis fræðimenn. Rithöfundar, sem vilja sverja fyrir sanmeyti við óhollar stefnur, nota kanselístílinn, þetta niður- lægingartákn íslenzkrar bókmenningar, til að sanna með hreinleik sálar sinnar og jafnframt sem vopn gegn spillingu málsins og bók- menntanna. Kanselístíllinn hefur haft mikil og ill áhrif á málfar al- þýðu. Fundargerðir, tillögur og ályktanir eru settar saman undir áhrifum hans. I daglegu tali gætir hans helzt, þegar einhver vill setja sig á háan hest, eða sýnast meiri maður en hann raunveru- lega er. Mörgum alþýðumanni hættir við, þegar hann skrifar sendibréf, að setja það saman í hálfgerðum kanselístíl. Þetta stafar þó venju- lega ekki af hroka, heldur blátt áfram af því, að menn halda í ein- feldni sinni, að það sé eitthvað fínna en þeirra eigið tungutak. Það mætti segja mér, að margur maður heíði misst af góðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.