Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 71
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 245 í eðlilegum framburði setningarinnar ,.allir eru flúnir úr bænum“ hefur eru enga áherzlu. Ofimlegt er að stuðla á síðára lið orðs, allra helzt ef fyrri liður er einkvæður: sem himins þíns bragandi norðljósa log og ljóðin á skáldanna tungu. Þá gerir rímið sínar kröfur engu síður en stuðlarnir. Einnig það heimtar mikilvæg orð sér til handa, eigi það ekki að vera máttlaust og ónýtt og verra en ekki. Og þá má segja að fari að þrengjast um fyrir veslings skáldinu. Þó að hann ráðist ekki í meira en setja saman eina ferskeytlu, þarf hann í tvígang að finna þrjú orð, helzt veigamikil, er beri stuðla, og fjögur orð, ekki síður veigamikil, er rími tvö og tvö. Öllu þessu verður að halda innan þeirra skefjá sem vísuformið setur. Engu orði má vera ofaukið og engu of fátt. Skáldið verður að gera sér allt far um að láta líta svo út sem sú vísa er hann kann að hafa legið yfir dögum saman hafi orðið til fyrirhafnarlaust, eins og af sjálfu sér. Það er alkunnugt að fjöldi vísna hefur þann annmarka að allt er sagt i síðara helmingnum, en hinn fyrri verður eintóm eyðu- fylling. Frægt er þetta erindi: Mín er þetta meining full, maður, vel það heyr: Heldur leirugt gef mér gull en gylltan leir. Barnamaðurinn í kotinu skýrir frá högum sínum: „Ég á ekki neitt til neins nema börn og skuldir“. En fyrri parturinn verður miklu síðri: „Ekki bíður svarið Sveins, sízt eru hagir duldir“. — Drykkju- maðurinn lýsir hvernig komið sé fyrir sér: „Flöskur standa framan í mér fyrir löngu tómar“. Svo staglar hann framan við: „Von er andinn vikni hér verði þröngir gómar“. — Langferðamaðurinn horfir með ógn og kvíða til fj allvegarins sem hann á í vændúm að næturlagi: „Kvíði ég fyrir Kaldadal, kvölda tekur núna“. En úr þessu broti hefur aldrei orðið heil vísa; það sem skeytt hefur verið framan við: „Herra guð í himnasal, haltu mér við trúna“, er eins og hver önnur dauðans vandræði. Og þannig mætti telja endalaust. Nokkur galli þykir sumum það á vísu ef rökrétt samband vantar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.