Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 50
224 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hylja, ís og mýs, skína og sýna. Ef við berum saman færeysku og íslenzku, sjáum við glöggt hvernig ýmislegur samruni hljóðanna hefur lagt færeyskum skáldum í hendur fjölda rímmöguleika sem Islendingar verða án að vera. Þau geta rímað breiða og eiga, herða og gera, tala og mœla, œr og garð. Eitt erindi í Jijóðsöng Færeyinga hljóðar svo: Mítt fpðiland tað er ei stórt sum onnur lond, men so væl hevur Gud tað gjort við síni hond, at alla tíð tað til sín dregur hjarta mítt, tí rúm tað best í Fóroyum hevur at sláa frítt. Þetta þykir okkur við fyrstu sýn slælega kveðið. En þegar við vitum að ó í stórt er framborið eins og ó', og að g í dregur hefur breytzt í v, verður augljóst að kveðandi er hér lýtalaus. Samt öfunda ég Færeyinga ekki af þessum hljóðbreytingum, alveg eins og mér virðist það eittlivert mesta óhapp sem drifið hefur á daga íslenzks máls að Jiað glataði y-hljóðinu; Jiar hefur farið á eftir ýmiss konar óskýrleikur og glundroði. Það er líka næsta einkennilegt að einmitt á 16. öld, þegar stuttar samstöfur lengjast og y-hljóðið er að hverfa, verður sýn afturför í formfeslu íslenzkrar ljóðagerðar, eins og slak- að sé á öllum kröfum. Meðal síðustu kynslóða höfum við séð þess mörg dæmi að skáld sem uppalin eru við þá ósvinnu að bera hv fram eins og kv (segja kvílur og kvað og kvass), stuðla hv á móti k-i. Ekki verður að svo stöddu sagt með vissu hvort nokkur maður hefur leyft sér Jietta fyrr en á öndverðri 19. öld, enda átti framburður þessi sér Jrá litla stoð. En skáldum þeim er ekki hafa verið þess umkomin að hrista þetta af sér má skipta í tvennt. Sum stuðla einlægt sitt á hvað, svo að lesandinn veit aldrei hvar hann hefur Jrau. Gott dæmi er þessi vísa sem Káinn orti vestan hafs: Kæra foldin kennd við snjó, hvað ég feginn yrði, mætti holdið hvíla í ró heima í Eyjafirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.