Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 130

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 130
304 TÍMARIT MÁLS OG MENNINCAR minnstan þátt í að slípa og móta ritmál þjóðarinnar og ruddi þannig braut hinum miklu fornbókmenntum. Ennfremur átti það fyrir þessari bókmennta- grein að liggja að verða fyrirmynd sams konar bókmennta innlendra, þegar tímar liðu, og þjóðin hafði eignazt sína eigin dýrlinga, og jarteiknabækur þeirra voru skráðar. Þegar hinar íslenzku jarteiknabækur eru frá skildar, hafa þessar bók- menntir verið svo að segja alveg ókunnar öllum almenningi hér á landi. Mestur hluti þeirra (helgisögurnar) var gefinn út í Noregi á síðari hluta nítjándu aldarinnar af C. R. Unger, og Hugo Gering gaf „ævintýrin" út nokkru seinna suður í Þýzkalandi, en engar þessara hóka hafa náð neinni útbreiðslu á Islandi. Fyrir jólin í vetur sendi hókaútgáfan Heimskringla frá sér úrval þessara sagna, sem dr. Einar 01. Sveinsson, háskólabókavörður, hefur valið. Bók þessa nefnir hann Leit eg suður til landa, og má vafalaust skoða hana að öðrum þræðinum sem framhald af úrvali hans úr íslenzkum þjóðkvæðum, sem kom út fyrir nokkru. Bókin hefst á forspjalli um sögur þessar almennt, og er það hið greinabezta sem vænta mátti. Að forspjallinu loknu hefst bókin sjálf á „ævintýrunum“. Þá tekur við úrval úr Strengleikjum, en það eru fornar norsk- ar þýðingar á frönskum söguljóðum (lais), en þau hárust hingað frá Eng- landi, enda ort þar að nokkru af hinum frönsku sigurvegurum. Þeim, sem þessar línur ritar, hefði þótt skemmtilegra, að Strengleikarnir hefðu verið felldir niður úr þessari bók, en að hann hefði mátt eiga þeirra von síðar í upphafi að úrvali Einars Ól. Sveinssonar af riddara- og kappasögum. Loks lýkur bókinni með helgisögum, fyrst hinum útlendu og þá hinum innlendu' jarteiknasögum um hina helgu biskupa, Guðmund, Þorlák og Jón. Þó að mikill hluti þessara sagna sé af erlendum stofni og víða komi þeim föng, hafa þær þó haft harla mikla þýðingu fyrir íslenzka menningarsögu. Aður hefur verið drepið á þátt þeirra í skiipun ritmálsins. En auk þess sýna þær okkur inn í hugmyndahéim síns tíma: menningu, andleg viðfangsefni manna og trúarskoðanir. Innlendu sögurnar gefa okkur ennfremur töluverða innsýn í daglegt líf og störf manna. Mér er nær að halda, að all-ískyggileg eyða væri í þekkingu okkar á þessum tímum, ef helgisagnanna, jafnt hinna erlendu, nyti ekki við, og að fræðimenn eigi þó flest óunnið á því sviði. Eng- inn efast um, að trúfræði Passíusálmanna hafi haft sín áhrif hér á landi, þó að síra llallgrímur liti suður til landa eftir svo að segja öllum efnivið hennar, svo að tekið sé alkunnugt dæmi frá síðari tímum. Islendingum hefur um of hætt til þess að líta á sögu sína og hókmenntir sem óháð og einskorðað fyrir- hrigði. Hinar fornu helgisagnir hafa goldið þess, og er tími til kominn, að þeim sé skipaður sá sess, sem þeim her. Sem vænta mátti hefur dr. Einari tekizt valið prýðilega, og frágangur hókar- innar er góður. Loks má geta þess, að hana prýða nokkrar myndir eftir frú Barhöru Moray Williams Arnason, en ekki finnst mér þær hafa tekizt eins vel og margar aðrar hókaskreytingar hennar. Haraldur Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.