Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 45

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Blaðsíða 45
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 219 úr æðri heimum, skáldið þykir nátengdara goðum og máttarvöld- um tilverunnar en aðrir menn. Af þessum rökum, hugði Magnús Olsen, hefði skáldið dregið nafn, það hafi verið sjónargagn, fyrir orð þess og tilstilli hafi menn þótzt geta ráðið í hvað hin máttugu regin sem heiminum stjórna ætluðust fyrir. Við ættum eftir þessu að gera ráð fyrir, að eins og forfeður vorir sóttu sér, ef þeir voru þyrstir, svaladrykk í keraldið, þannig hafi þeir, ef þeir voru for- vitnir um framtíðina eða yggjandi um vilja goðanna, sótt sér vitneskju í skáaldið. Skýring Magnúsar Olsens er studd miklum lærdómi sem hér væri fásinna að rekja, en því er ekki að leyna, að hún hefur þótt mjög hæpin, og höfundur hennar hefur sjálfur síðar látið í ljós efasemdir um að hún geti verið rétt. En hvað sem líður skýringum orðsins, þá er það víst að langt fram eftir öldum nutu íslenzk skáld þeirra hlunninda fram yfir aðra menn, að orð þeirra gátu leyst eða bundið margvísleg hulin mögn. Mér er ekki kunnugt um að önnur eins trú á mátt kveðskap- arins hafi verið til hjá nálægum þjóðum. Þau gátu ort á menn sóttir og auðnuleysi, ýft öldur sjávarins, reist brimskaflinn, æst vindana. Þau gátu kveðið vættir fram úr grjótfylgsnum sínum, en framar öllu gátu þau losað menn undan áreitni drauga og sendinga með því að kveða þessi meinvætti niður, og þurfti þá oft að ganga nærri sér. Við eigum ennþá þann kvæðaflokk sem Jón lærði kvað árið 1612 þegar hann var að bisa við að særa niður Snjáfjalla- drauginn. Það minnir helzt á alþingiskantötu, en er miklu ramm- ar kvæði og andheitara; til ríms er ekki sparað, enda auðsjáanlega húizt við að draugsi þoli það illa. Margt skáldið hefur fyrr á tím- um fundið til máttar síns, og hafi það ekki beitt honum gat það tekið sér í munn orð Ásmundar í Samkomugerði: Þó hefði eg soddan hróffrar snert að hrífa nokkrum skyldi, er sá sæll sem illt gat gert og ekki aff heldur vildi. Sá sem gaman hefur af að virða fyrir sér fjölbreytni tungumál- anna kemst ekki hjá því að taka eftir hversu mismunandi skilyrði þau bjóða skáldum sínum til ljóðagerðar. Aðeins atriði eins og það, hvort mál hefur forsettan greini eins og enska og þýzka, eða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.